Capacent vinnur verkefni fyrir Alþjóðabankann 2. febrúar 2010 15:22
Að loknu alþjóðlegu útboði á síðasta ári ákvað IFC, sem er deild innan Alþjóðabankans að taka tilboði Capacent í ráðgjöf vegna vörudreifingarfjármögnunar.Í tilkynningu segir að fjármögnun á vörudreifingu eða Supply Chain Financing (SCF) getur verið heppilegur stuðningur við framleiðendur í þróunarríkjum sem vilja koma afurðum sínum á alþjóðlegan markað.Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent hefur unnið fyrir International Finance Corporation (IFC), sem er sú eining Alþjóðabankans, eða World Bank Group í Washington, er sinnir stuðningi við einkafyrirtæki í þróunarríkjum.Capacent vann í kjölfarið alþjóðlega könnun á markaðsþróun og bestu starfsháttum á sviði SCF. Könnunin ber heitið Global Supply Chain Financing Market Study og eru aðstæður í Bangladesh, Brasilíu, Gvatemala, Indónesíu, Rúmeníu, Tyrklandi og Víetnam þar skoðaðar sérstaklega og lagt mat á jafnt þörfina fyrir sem áhugann á vörudreifingarfjármögnun.Markmið könnunarinnar var að geta í framhaldinu lagt mat á hversu vel SCF hentar sem tæki fyrir Alþjóðabankann til að efla útflutning þróunarríkja.Vinnu við könnunina lauk í nóvember á síðasta ári og í ljósi niðurstaðna hennar ákvað IFC að gera áframhaldandi samning við Capacent um frekari úrvinnslu á niðurstöðunum og eftirfylgni þeirra.Hefur Capacent verið falið að þróa tillögur um hvernig IFC geti beitt vörudreifingarfjármögnun í auknum mæli til að styðja við fyrirtæki í þróunarríkjum, sem selja framleiðslu sína til stórfyrirtækja í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan.„Það er mikil viðurkenning fyrir Capacent að Alþjóðabankinn skuli hafa valið okkur sem samstarfsaðila í þessu verkefni og sýnir að Capacent hefur tryggt sér stöðu sem leiðandi fyrirtæki á sviði rannsókna og ráðgjafar á Norðurlöndunum. Þetta er mjög spennandi og heillandi verkefni og við vonum að niðurstöður þessarar vinnu muni gagnast Alþjóðabankanum vel í stuðningi við fyrirtæki í þróunarríkjunum," segir Skúli Gunnsteinsson, forstjóri Capacent International.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira