Bestu launin í þrotabúunum 16. mars 2010 00:01 úr einum bankanna Starfsfólk bankanna í eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf og á tengdum sviðum er með hæstu launin. Launin hækka í takt við menntun og sérfræðiþekkingu. Fréttablaðið/vilhelm
Starfsfólk skilanefndar og slitastjórnar Glitnis var með hæstu meðallaunin í bankakerfinu á liðnu ári, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Meðallaun þar námu 874 þúsund krónum á mánuði. Ein lægstu meðallaun innan fjármálageirans hafði starfsfólk hjá Byr sparisjóði, 467.790 krónur á mánuði. Erfitt er að meta launakjör innan fjármálageirans, jafnt hjá gömlu bönkunum sem öðrum fjármálafyrirtækjum. Fréttablaðið sendi þeim helstu fyrirspurn um launaupplýsingar í síðustu viku. Ítarlegri upplýsingar um kaup og kjör fengust ekki. Tekið var fram í svörum fyrirtækjanna að laun hafi almennt lækkað mikið eftir hrunið 2008, eða um allt að þrjátíu prósent. Landsbankinn greindi þó frá því að Ásmundur Stefánsson bankastjóri er launahæsti starfsmaður bankans með 1,5 milljónir króna auk tvö hundruð þúsund króna í hlunnindi á mánuði. Eftir því sem næst verður komist eru framkvæmdastjórar bankanna með í kringum eina milljón króna á mánuði þrátt fyrir launalækkun. Þá herma nokkrar heimildir að starfsfólk skilanefnda og slitastjórna bankanna sé með allt upp undir tvær milljónir króna í mánaðarlaun. Það hefur ekki fengist staðfest. Engir bónusar hafa verið greiddir frá hruni, hvorki hjá gömlu bönkunum né hjá öðrum fjármálafyrirtækjum, samkvæmt upplýsingum frá þeim. Ekki fengust upplýsingar frá skilanefndum Straums, Spron og Sparisjóðabankans. Launamunurinn skrifast að miklu leyti á menntun og bakgrunn starfsfólks fyrirtækjanna. Nær allt starfsfólk skilanefnda og slitastjórna er sérfræðingar; lögfræðingar, hagfræðingar, viðskiptafræðingar og lögfræðingar. Um 65 til sjötíu prósent starfsmanna Íslandsbanka er með háskólamenntun, 62 prósent starfsmanna MP Banka, um helmingur starfsmanna Arion banka en fjörutíu prósent hjá Byr og Nýja Landsbankanum. Flestir háskólamenntaðra starfsmanna bankanna eru með viðskiptafræðimenntun. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira