Telja að bankinn hafi blekkt með ársreikningum ÞÞ og JHH skrifar 1. desember 2010 15:18 Herdís Hallmarsdóttir, fulltrúi í slitastjórn (t,h) segir að ekki hafi veirð rétt staðið að flokkun á vensluðum aðilum í Landsbankanum og áhættuskuldbindingum vegna útlána til þeirra.
Slitastjórn Landsbankans telur að bankinn hafi veitt rangar upplýsingar í ársreikningum árið 2007 og ætlar að krefjast bóta frá endurskoðendum af þeim sökum. Fram kom á fundi skilanefndar og slitastjórnar Landsbankans í dag að bankinn hafi verið kominn langt undir lögmætt eiginfjárhlutfall töluvert löngu áður en hann féll í október 2008. Þá sagði Herdís Hallmarsdóttir, meðlimur í slitastjórn Landsbankans, að slitastjórnin teldi að ekki hafi verið staðið rétt að flokkun venslaðra aðila og þar með áhættuskuldbindingum vegna útlána til þeirra. Aðspurð sagði hún að slitastjórnin teldi að bankinn hafi brotið reglur um stórar áhættuskuldbindingar vegna lána til félaga í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar á árinu 2007 og 2008. Fréttamaður: Er það svo að þið teljið þið að ársuppgjör bankans hafi ekki gefið rétta mynd af stöðu hans árið 2007? „Rétt," sagði Herdís aðspurð um þetta atriði. Þar vísaði hún til þess að skilanefnd og slitastjórn hefðu tilkynnt fyrrum ytri endurskoðendum Landsbankans, PricewaterhouseCoopers, um hugsanlega bótaskyldu fyrirtækisins vegna vanrækslu við endurskoðun á ársreikningum bankans vegna ársins 2007 og áritunar árshlutareikninga árið 2008. Herdís sagði jafnframt að slitastjórnin hefði átt samskipti við þá endurskoðendur sem í hlut ættu og óskað eftir vinnugögnum til að afla sér nánari upplýsinga um reikningskil þetta ár. Endurskoðendur hafi ekki orðið við þeirri kröfu og ekki viljað afhenda gögnin.
Tengdar fréttir Telur ekki grundvöll fyrir málsókn gegn sér Halldór Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbanka Íslands, segir að Landsbankinn hafi keypt ábyrgðartryggingu í Bretlandi fyrir starfsfólk sitt. Slitastjórn bankans hafi tilkynnt hlutaðeigandi tryggingafélagi að hún telji að kröfurnar falli undir trygginguna. Þetta kemur fram í orðsendingu sem Friðjón Örn Friðjónsson, lögmaður Halldórs sendi fjölmiðlum. 1. desember 2010 15:43 Slitastjórn Landsbankans krefur stjórnendur um 37 milljarða Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjórar Landsbankans, eru hvor fyrir sig krafðir um 37 milljarða króna en slitastjórn Landsbankans hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur þeim vegna meintrar vanrækslu. Þá er Elín Sigfúsdóttir krafin um 18 milljarða króna. 1. desember 2010 12:00 Sigurjón verst líka riftun og segist gjaldþrota gangi hún eftir Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir að gangi 300 milljóna króna riftunarmál sem slitastjórn Landsbankans hefur höfðað á hendur honum vegna launauppgjörs verði hann gjaldþrota. Lögmaður hans segist ekki skilja hvers vegna slitastjórn sé að krefja hann um 37 milljarða þar sem hann hafi að mestu verið atvinnulaus frá 8. október 2008. 1. desember 2010 14:00 Mest lesið Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Viðskipti erlent Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira
Telur ekki grundvöll fyrir málsókn gegn sér Halldór Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbanka Íslands, segir að Landsbankinn hafi keypt ábyrgðartryggingu í Bretlandi fyrir starfsfólk sitt. Slitastjórn bankans hafi tilkynnt hlutaðeigandi tryggingafélagi að hún telji að kröfurnar falli undir trygginguna. Þetta kemur fram í orðsendingu sem Friðjón Örn Friðjónsson, lögmaður Halldórs sendi fjölmiðlum. 1. desember 2010 15:43
Slitastjórn Landsbankans krefur stjórnendur um 37 milljarða Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjórar Landsbankans, eru hvor fyrir sig krafðir um 37 milljarða króna en slitastjórn Landsbankans hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur þeim vegna meintrar vanrækslu. Þá er Elín Sigfúsdóttir krafin um 18 milljarða króna. 1. desember 2010 12:00
Sigurjón verst líka riftun og segist gjaldþrota gangi hún eftir Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir að gangi 300 milljóna króna riftunarmál sem slitastjórn Landsbankans hefur höfðað á hendur honum vegna launauppgjörs verði hann gjaldþrota. Lögmaður hans segist ekki skilja hvers vegna slitastjórn sé að krefja hann um 37 milljarða þar sem hann hafi að mestu verið atvinnulaus frá 8. október 2008. 1. desember 2010 14:00