Bakkavör greiði allt en fresti gjalddögum 18. janúar 2010 06:00
Bakkavör mun í dag óska eftir heimild til að leita nauðasamnings við lánardrottna. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hafa kröfuhafar rúmlega 70 prósenta skulda félagsins þegar samþykkt innihald nauðasamningsins. Í frumvarpi að nauðasamningnum, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er gert ráð fyrir að engar afskriftir verði á skuldum Bakkavarar. Hins vegar verður gjalddögum á lánum frestað þannig að þau verði að fullu greidd með vöxtum um mitt ár 2014 - eða eftir fjögur og hálft ár. Um gríðarlegar fjárhæðir er að ræða því móðurfélag Bakkavarar skuldar lánardrottnum um 62,5 milljarða króna. Íslenskir lífeyrissjóðir eru þar fremstir í flokki. Stofnendum og aðaleigendum Bakkavarar, bræðrunum Lýði og Ágústi Guðmundssyni, er ætlað að stýra félaginu áfram. Gangi áætlunin eftir munu bræðurnir fá að skrifa sig fyrir 25 prósenta hlut í Bakkavör á árinu 2014. Verður þá miðað við að gengi bréfanna sé 1,0. Kröfuhafarnir fá hins vegar þegar í stað 26,67 prósenta hlut í félaginu. Á móti þeim hlut reiknast 784 milljónir króna af skuldum Bakkavarar, eða um 1 prósent af heildarskuldum félagsins. Í þeim viðskiptum reiknast hlutabréfin á genginu 1,0. Kröfuhafar geta eignast enn stærri hlut gangi greiðsluáætlunin ekki eftir. Að öðru leyti halda núverandi hluthafar í Bakkavör hlut sínum. Félagið verður skráð úr Kauphöllinni þar til rekstraráformin eru orðin að veruleika. Samkvæmt frumvarpinu til nauðasamningsins fela tvær mismunandi leiðir varðandi hlutafjáreign kröfuhafanna í Bakkavör það sama í sér. „Hver sem uppgjörsaðferðin verður munu lánardrottnar fá í hendur verðmæti sem jafngilda fjárhæð samningskrafna þeirra á hendur Bakkavör (100%)," segir í frumvarpinu. - gar
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Lífeyrissjóðirnir alltumlykjandi á markaðnum Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira