VBS var í vanda vegna lausafjárskorts 5. mars 2010 04:15 hróbjartur Jónatansson Hann er formaður bráðabirgðastjórnar sem tók yfir VBS fjárfestingabanka. „
Það er tvennt í stöðunni þegar bankinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar: óska eftir greiðslustöðvun sem getur leitt til nauðasamninga eða fara í slitameðferð," segir Hróbjartur Jónatansson, formaður bráðabirgðastjórnar sem tók við VBS fjárfestingarbanka í fyrradag. Stjórnin er nú að skoða stöðu bankans, svo sem kanna möguleika á að stokka upp reksturinn. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að VBS glímir við fjárhagserfiðleika og gat ekki greitt af 26 milljarða króna láni undir lok síðasta árs. Fjárhagsstaða VBS hefur verið þröng um nokkurt skeið og átti bankinn ekki nægt fé til að standa við skuldbindingar sínar. Heildarskuldir VBS nema um 39 milljörðum króna og skuldin við Seðlabankann er rúmlega 70 prósent þeirra. Eftir því sem næst verður komist skýrist slæm staða bankans af því að bankinn neyddist til að ganga að veðum og taka lóðir og fasteignir upp í skuldir viðskiptavina eftir bankahrunið í hittifyrra. Þessar eignir eru nú umfangsmiklar í safni bankans og erfitt að breyta þeim í handbært fé. Ekki fengust upplýsingar um það í gær hvort Seðlabankinn breyti láninu til VBS í kröfu á hendur bankanum. - jab
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Sjá meira