Já, Dorrit 27. apríl 2010 08:00 Yfirstéttin komin á svið sem skotspónn.
Nei, Dorrit! Mánudagsleikhúsið á sunnudagskvöldi í Iðnó Stuttur leikþáttur byggður á viðtali forsetahjónanna sem Joshua Hammer tók fyrir Condé Nast Portfolio. Leikgerð: Þórarinn Leifsson. Leikarar: Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Snorri Ásmundsson, Davíð Þór Jónsson, Kristín Anna Valtýsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir. Hljóðmynd: Ragnar Kjartansson og Davíð Þór Jónsson. Aðstoðarleikstjóri: Þorsteinn Bachman. Leikstjóri: Auður Jónsdóttir. Að sviðsetja viðtal er frábær hugmynd. Umgjörðin er myndlistarverk sem gott er að hvíla augun á. Orðin sem sögð eru hríslast niður í kokið á áhorfendum sem geta ekki annað en hlegið þótt hálf skömmustuleg tilfinning fylgi þar með. Þau sitja við borð og viðtalið virðist hafa tekið þó nokkuð marga klukkutíma því af og til dottar hinn ráðvillti forseti og á meðan spjalla frúin og blaðamaðurinn um þessa þjóð og þennan forseta og þetta bankahrun og það líf sem hún lifir í þessu landi sem hún hafði aldrei séð fyrr en hún fylgdi Ólafi þangað. Snorri Ásmundsson, sem er gjörningalistamaður, fer með hlutverk Ólafs í leiknum og þó svo að hann sé svolítið óskýrmæltur er stirðbusahættinum og vélrænunni vel komið til skila. Guðrún Ásmundsdóttir læðist af og til inn og hellir víni í glös Dorritar og blaðamannsins meðan skýrt er sýnt að forseti vor drekkur aðeins vatn. En þótt hann drekki vatn er hann samt eins og ölvaður. Meðhlæjendur geta orðið hífaðir og stundin verður áfeng eins og vín eins og stendur í kvæðinu. Ásdís Sif Gunnarsdóttir er eins ólík Dorrit eins og hugsast getur og það var gott, það gerði fáránleikann stærri. Hér er um myndbrot úr raunveruleikanum að ræða. Davíð Þór Jónsson fer með hlutverk blaðamannsins. Hann heldur ætlun sinni allan tímann og hundurinn litli sem talar mannamál í meðförum Kristínar Önnu Valsdóttur undirstrikar orð Dorritar á skemmtilegan hátt. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Ótrúlega góð hugmynd, en ekki eins gott leikrit.
Gagnrýni Leikhús Lífið Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira