Tætingslegt veldi í molum 20. janúar 2010 06:00 stofnandinn Nordic Partners varð til upp úr fjárfestingum Gísla Reynissonar hagfræðings í einkavæðingu í Lettlandi undir miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Fréttablaðið/Anton „
Við höfum vitað af þessu í nokkurn tíma og höfum fengið þau skilaboð frá skilanefnd Landsbankans að yfirtakan muni ekki hafa nein áhrif á reksturinn,“ segir Jón Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri einkaþotuleigunnar Icejet. Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur skilanefnd Landsbankans gengið að veðum í eignarhaldsfélaginu Nordic Partners og mun á næstu vikum taka lyklavöldin á hótelkeðjunni NP Hotels og taka yfir allar þotur í eigu Icejet, eins dótturfélaga Nordic Partners. Icejet var stofnað árið 2006 og rekur fimm sérstaklega innréttaðar Dornier-328 einkaþotur. Tvær þotnanna hafa verið á söluskrá í ár en þokast lítið í kreppunni. Félagið gerði áður að miklu leyti út frá Reykjavíkurflugvelli en flutti reksturinn alfarið til Bretlands í október 2008. Þær eru leigðar til efnaðra einstaklinga og fljúga víða um Evrópu. Nokkur hótel eru innan NP Hotels. Þar á meðal er glæsihótelið D‘Angleterre auk veitingastaðanna Copenhagen Corner og Front. Rekstur Kong Frederik var seldur um mitt síðasta ár og húsnæðið leigt kaupandanum, dönsku hótelkeðjunni First Hotel. Frumkvæðið að viðskiptunum kom frá Landsbankanum, sem lánaði Nordic Partners fyrir kaupunum á hótelkeðjunni haustið 2007. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við eru sammála um að Nordic Partners hafi keypt dönsku hótelkeðjuna dýru verði. Verðmiðinn er þó nokkuð á reiki en almennt er talið að hann hafi numið á milli eins til 1,5 milljarða danskra króna á sínum tíma, jafnvirði um tólf til átján milljarða króna á þávirði, að meðtöldum skuldum sem voru teknar yfir. Þetta var talsvert yfir uppsettu verði, samkvæmt dönskum fjölmiðlum. Einn viðmælenda Fréttablaðsins sagði viðskiptamódel Nordic Partners tætingslegt; hótelrekstur í Kaupmannahöfn hafi rímað illa við einkaþotuleigu í Bretlandi og matvælaframleiðslu og útleigu á iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði í Eystrasaltsríkjunum. Ekki náðist í Jón Þór Hjaltason, stjórnarmann NP Hotels, þegar eftir því var leitað í gær. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira