Viðskipti innlent

Tætingslegt veldi í molum

stofnandinn Nordic Partners varð til upp úr fjárfestingum Gísla Reynissonar hagfræðings í einkavæðingu í Lettlandi undir miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Fréttablaðið/Anton
stofnandinn Nordic Partners varð til upp úr fjárfestingum Gísla Reynissonar hagfræðings í einkavæðingu í Lettlandi undir miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Fréttablaðið/Anton

„Við höfum vitað af þessu í nokkurn tíma og höfum fengið þau skilaboð frá skilanefnd Landsbankans að yfirtakan muni ekki hafa nein áhrif á reksturinn,“ segir Jón Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri einkaþotuleigunnar Icejet.

Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur skilanefnd Landsbankans gengið að veðum í eignarhaldsfélaginu Nordic Partners og mun á næstu vikum taka lyklavöldin á hótelkeðjunni NP Hotels og taka yfir allar þotur í eigu Icejet, eins dótturfélaga Nordic Partners.

Icejet var stofnað árið 2006 og rekur fimm sérstaklega innréttaðar Dornier-328 einkaþotur. Tvær þotnanna hafa verið á söluskrá í ár en þokast lítið í kreppunni. Félagið gerði áður að miklu leyti út frá Reykjavíkurflugvelli en flutti reksturinn alfarið til Bretlands í október 2008. Þær eru leigðar til efnaðra einstaklinga og fljúga víða um Evrópu.

Nokkur hótel eru innan NP Hotels. Þar á meðal er glæsihótelið D‘Angleterre auk veitingastaðanna Copenhagen Corner og Front. Rekstur Kong Frederik var seldur um mitt síðasta ár og húsnæðið leigt kaupandanum, dönsku hótelkeðjunni First Hotel. Frumkvæðið að viðskiptunum kom frá Landsbankanum, sem lánaði Nordic Partners fyrir kaupunum á hótelkeðjunni haustið 2007.

Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við eru sammála um að Nordic Partners hafi keypt dönsku hótel­keðjuna dýru verði. Verðmiðinn er þó nokkuð á reiki en almennt er talið að hann hafi numið á milli eins til 1,5 milljarða danskra króna á sínum tíma, jafnvirði um tólf til átján milljarða króna á þávirði, að meðtöldum skuldum sem voru teknar yfir. Þetta var talsvert yfir uppsettu verði, samkvæmt dönskum fjölmiðlum.

Einn viðmælenda Fréttablaðsins sagði viðskiptamódel Nordic Partners tætingslegt; hótelrekstur í Kaupmannahöfn hafi rímað illa við einkaþotuleigu í Bretlandi og matvælaframleiðslu og útleigu á iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði í Eystrasaltsríkjunum.

Ekki náðist í Jón Þór Hjaltason, stjórnarmann NP Hotels, þegar eftir því var leitað í gær.

jonab@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×