Uppgjör Landsbanka mun dýrara en hinna 27. febrúar 2010 09:15 Þessi gera búið upp. Kristinn Bjarnason og Pétur Örn Sverrisson ræða við Herdísi Hallmarsdóttur og Halldór Backman. fréttablaðið/Stefán
Rekstrarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar gamla Landsbankans nam tólf milljörðum króna í fyrra, samkvæmt gögnum sem kynnt voru á kröfuhafafundi bankans í vikunni. Kostnaður við lögfræðinga og aðra sérfræðinga erlendis vegur þyngst í uppgjöri bankans. Hann nam 4.691 milljón króna samanborið við 480 milljónir innanlands. Athygli vekur að þótt kostnaður við sérfræðikaup innanlands sé um 40 prósentum minni en hjá skilanefndum Kaupþings og Glitnis þá er heildarkostnaður við kaup á lögfræði- og öðrum sérfræðikostnaði nærri 57 prósentum meiri. Skilanefndir Kaupþings og Glitnis upplýstu fyrr í mánuðinum um kostnað við kaup á sérfræðiþjónustu hjá sér og tilgreindu þá sem skilanefndirnar höfðu átt viðskipti við. Skilanefnd Landsbankans kaus að svara ekki fyrirspurn Fréttablaðsins um efnið heldur vísa til þeirra upplýsinga sem fram áttu að koma í skýrslu skilanefndar síðasta miðvikudag. Skilanefnd Landsbankans hefur því engu svarað um af hverjum hefur verið keypt sérfræðiþjónusta fyrir tæpa 5,2 milljarða króna. Rekstrarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar Landsbankans er engu síður í kringum þremur milljörðum minni en áætlað var í septemberlok í fyrra. Tæp áttatíu prósent af heildarkostnaði féllu til hér og í starfsstöð gamla bankans í London í Bretlandi. Heildarkostnaður var 0,46 prósent af heildareignum í stýringu og eitt prósent af áætluðu verðmæti eigna. Þær námu 1.172 milljörðum króna í lok síðasta árs. Til samanburðar var heildarkostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis og Kaupþings 0,24 til 0,25 prósent af heildareignum. Uppgjör gamla Landsbankans er sagt vera mun umfangsmeira en Glitnis og Kaupþings þar sem starfsemi hinna heyrði undir dótturfélög í öðrum löndum á meðan Landsbankinn var með útibú í öðrum löndum. Kristinn Bjarnason, sem fer fyrir slitastjórn Landsbankans, segir að vegna uppbyggingar búsins hafi verið nauðsynlegt að leita til fjölmargra erlendra sérfræðinga og lögfræðinga sem þekkingu hafi á lögum hvers lands fyrir sig. jonab@frettabladid.is, olikr@frettabladid.is
Mest lesið Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Sjá meira