Pálmi „sat uppi með svarta pétur“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. janúar 2010 15:15 Pálmi Haraldsson. Skiptastjóri þrotabús Fons, sem var í eigu Pálma, hefur hafnað kröfum Glitnis vegna framvirkra saminga.
Pálmi Haraldsson, sem átti Fons eignarhaldsfélag, hafnar því að nokkuð fé hafi runnið frá Glitni banka til Fons dagana 5. september til 8. október 2008, rétt fyrir og eftir að FME tók bankann yfir. Þá hefur skiptastjóri þrotabús Fons hafnað kröfum Glitnis. „Árið 2007 skuldaði Fons Glitni ekki neitt. Þá gerist það að Gnúpur fer á hliðina. Það sem gerist er að Glitnir hafði lánað þessu fyrirtæki gríðarlegar fjárhæðir og situr uppi með öll hlutabréfin í FL Group. Þeir leituðu logandi ljósi að kaupendum. Mér var boðin sölutrygging á hlutabréfunum mínum í Skeljungi gegn því að kaupa hlutabréfin. Ég gekk að þessu tilboði en hefði betur sleppt því," segir Pálmi Haraldsson, en meðal krafna Glitnis í þrotabú Fons eru kröfur upp á 7,2 milljarða króna vegna samninga sem voru gerðir dagana 5. september til 8. október 2008. Tilboðið sem Pálmi fékk hjá Glitni var þannig að Glitnir sölutryggði allt hlutafé Fons í Skeljungi fyrir 8,7 milljarða króna í desember 2007. Daginn eftir að sölutryggingin var veitt lánaði Glitnir Fons um 10,3 milljarða til að kaupa hlutabréf í FL Group. „Ég keypti bréfin í FL Group og sat uppi með svarta pétur. Í kjölfarið voru gerðir framvirkir samningar um kaup á hlutabréfum og alls kyns aðrir snúningar. Mér voru seldar fjármálaafurðir í Glitni banka. Það runnu engir fjármunir til Fons á tímabilinu 5. september - 8. október. Það veit ég, það veit Vilhjálmur Bjarnason og það veit skiptastjóri þrotabúsins. Allt annað er hreinn og beinn tilbúningur. Það ber að taka skýrt fram að skiptastjóri þrotabúsins hafnaði þessum kröfum Glitnis," segir Pálmi Haraldsson. Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Fons, staðfesti orð Pálma og sagði í samtali við fréttastofu að kröfum vegna samninga um framvirk hlutabréfaviðskipti hafi verið hafnað af þrotabúinu. Um er að ræða samtals kröfur upp á 8,3 milljarða króna, en höfuðstóll kröfunnar er samtala samninganna, sem voru gerðir 5. september til 8. október 2008, alls 7,2 milljarðar króna.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira