Íslensk verðbréf hf. skiluðu 166 milljóna hagnaði í fyrra 29. janúar 2010 09:24
Rekstur Íslenskra verðbréfa skilaði 166 milljón kr. hagnaði eftir skatta á nýliðnu ári. Eignir í stýringu jukust um ríflega 25 milljarða á árinu og stýrir félagið nú 95 milljörðum króna fyrir einstaklinga, félagasamtök og fagfjárfesta. Í tilkynningu segir að viðskiptavinum félagsins fjölgaði töluvert á árinu og ber aukningin vott um trausta stöðu félagsins sem sérhæfðs eignastýringarfyrirtækis. Sævar Helgason framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa er ánægður með afkomu félagsins á árinu 2009. „Við getum ekki annað en verið sátt við þessa niðurstöðu, ekki síst þegar horft er til þeirra breytinga sem orðið hafa á íslenskum fjármálamarkaði ," segir Sævar í tilkynningunni. Að sögn Sævars felst styrkur félagsins í þeirri sérstöðu sem það hefur skapað sér og þeirri stefnu að vera hlutlaust og sérhæft eignastýringafyrirtæki. „Starfsemi Íslenskra verðbréfa felst eingöngu í því að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna en félagið stundar hvorki útlánastarfsemi né fjárfestir fyrir eigin reikning. Við erum eitt af fáum fjármálafyrirtækjum á Íslandi sem ekki hefur fengið ríkisaðstoð og erum með heilbrigðan rekstur og efnahag og skilum hagnaði við þessar erfiðu aðstæður. „ Sævar bætir við að árið hafi verið mjög viðburðarríkt hjá Íslenskum verðbréfum, sem starfað hefur frá árinu 1987. „Í sumar var okkur treyst fyrir rekstri verðbréfasjóða sem áður voru starfræktir af Rekstrarfélagi SPRON hf. Við lögðum gríðarlega vinnu í að leysa það verkefni vel þannig að viðskiptavinir SPRON fyndu lítið fyrir breytingunni. Það virðist hafa tekist því langflestir þeirra hafa haldið tryggð við okkur og við sjáum m.a. aukningu í sjóðum á borð við Áskriftarsjóð ríkisverðbréfa," segir Sævar.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi,“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Sjá meira