Rúmlega 96 milljarða viðsnúningur á vöruskiptunum 29. janúar 2010 09:16
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2009 fluttar út vörur fyrir 497,1 milljarð króna en inn fyrir 409,9 milljarða króna. Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum, sem nam 87,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 8,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 96,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.Þetta kemru fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 42,0 milljarða króna og inn fyrir 35,0 milljarða króna. Vöruskiptin í desember voru því samkvæmt bráðabirgðatölum hagstæð um 7,0 milljarða króna. Í desember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 26,4 milljarða króna á sama gengi. Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2009. Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2009 var heildarverðmæti vöruútflutnings 20,6% minna en á sama tíma árið áður á föstu gengi . Iðnaðarvörur voru 48,2% alls útflutnings og er þetta annað árið í röð, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem hlutdeild iðnaðarvara er hærri en sjávarafurða.Verðmæti iðnaðarvara var 26,5% minna á árinu 2009 en árið áður og vó ál þyngst í útflutningnum. Sjávarafurðir voru 42,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,2% minna en á sama tíma árið áður. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða var fryst fiskflök og dróst útflutningur þeirra saman frá árinu 2008. Sölur á skipum og flugvélum drógust saman á árinu.Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2009 35,4% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2009 voru hrá- og rekstrarvara með 30,5% hlutdeild og fjárfestingarvara með 21,6% hlutdeild.Samdráttur varð í nær öllum liðum innflutnings en af einstökum liðum varð mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, í innflutningi á fjárfestingavöru og á flutningatækjum, aðallega fólksbílum og flutningatækjum til atvinnurekstrar.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira