Viðskipti innlent

Olíuverzlunin gagnrýnir málflutning FÍB

Olíuverzlun Íslands hf. vill koma því á framfæri að forsvarsmenn félagsins eru ekki sammála mati Félags íslenskra bifreiðaeigenda á álagningu íslensku olíufélaganna. Á forsíðu Fréttablaðsins í dag eru birtar tölur frá FÍB þar sem fram kemur að íslensk olíufélög leggja að meðaltali 31 krónu á hvern bensínlítra. Sambærileg álagning í Svíþjóð er 14 íslenskar krónur.

Í tilkynningu frá Olíuverzluninni segir:

„Sú álagning sem FÍB hefur reiknað út sem meðaltals álagningu íslensku olíufélaganna er verulega ofmetin og er ekki í neinu samræmi við tölur úr uppgjörum félagsins og á það bæði við um árin 2009 og 2010. Framlegðartölur félagsins eru í samræmi við framlegðartölur í öðrum norrænum ríkjum, sem endurspeglast í því að eldsneytisverð hefur nú um langt skeið verið mun lægra hér á landi en í flestum löndum í kringum okkur

Það er torskilið hvað FÍB gengur til með að láta hafa eftir sér upplýsingar sem þessar, en telji FÍB sig vera í aðstöðu til að senda út tilkynningar um álagningu félaga á íslenskum olíumarkaði, þá þarf sú stofnun að vinna slíkar upplýsingar mun betur en gert hefur verið við undirbúning þessarar fréttar. Þannig virðist FÍB ekki taka tillit til hárra afslátta hér á landi, en þess má til dæmis geta að viðskiptavinum FÍB býðst allt að 6 króna afsláttur á lítra."


Tengdar fréttir

Íslensk olíufélög leggja mest á

Álagning á hvern bensínlítra á sjálfsafgreiðslustöðvum íslensku olíufyrirtækjanna er talsvert hærri en gengur og gerist í Danmörku og Svíþjóð. Var meðalálagning til dæmis tvöfalt hærri hérlendis en í Svíþjóð árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×