Íslensk olíufélög leggja mest á 20. september 2010 06:15 Hermann Guðmundsson, forstjóri N1.
Álagning á hvern bensínlítra á sjálfsafgreiðslustöðvum íslensku olíufyrirtækjanna er talsvert hærri en gengur og gerist í Danmörku og Svíþjóð. Var meðalálagning til dæmis tvöfalt hærri hérlendis en í Svíþjóð árið 2009. Samkvæmt tölum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, var meðalálagning íslensku félaganna 31 króna á hvern lítra í fyrra. Sambærileg upphæð í Svíþjóð var 14 íslenskar krónur, samkvæmt upplýsingum þarlendra olíufélaga. Í Danmörku nam álagning rúmum 20 íslenskum krónum að því er fram kemur á vef samtaka þarlendra olíufélaga en í Noregi var álagningin 28 krónur. Ástandið virðist hafa breyst til hins betra á þessu ári, en meðaltal fyrstu níu mánaða ársins er komið niður í 28 krónur. Það er með lægra móti þegar litið er til síðustu missera hér á landi og verð framreiknað að núvirði. Þegar litið er aftur til ársbyrjunar 2008 sýna tölur FÍB að álagning á bensín innan þess tímabils var hæst í nóvember 2008, þegar olíufélögin tóku til sín 41 krónu á hvern lítra. Lægst var álagning á bensínlítrann hins vegar í júní þessa árs þegar rúmar 24 krónur runnu til félaganna. Varðandi fyrstu níu mánuði þessa árs voru ekki tiltækar tölur frá Noregi, en álagning dönsku félaganna virðist standa í stað og hjá sænsku félögunum hefur álagning hækkað eilítið, eða upp í 17,5 krónur miðað við 28 krónur hér á landi, eins og að ofan greinir. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir þessar tölur geta staðist, en flutningskostnaður sé hærri hér á landi og félögin hér gefi öll afslætti ofan á listaverð. „Nettóálagning okkar er töluvert lægri þegar dæmið er gert upp. Ég veit ekki hvernig þessu er háttað í Svíþjóð en held að það sé minna um afslætti þar en hér á landi." Hermann telur að sé það tekið með í reikninginn, verði álagningin svipuð, og það sé í raun óeðlilegt miðað við stærðarmun á mörkuðum hér og í Svíþjóð. Hann segir aukinn stöðugleika upp á síðkastið leiða til þess að álagning sé nú við lægstu mörk. „Við í FÍB höfum lengi haft þá skoðun að álagning sé of há hér á landi í samanburði við nágrannalöndin," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. - þj
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Óskað eftir tillögum að uppbyggingu við Reykjanesvita Viðskipti innlent WOW millilendir á leiðinni til Los Angeles Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira