Samiðn setur fram hörð mótmæli gegn Landsvirkjun 25. júní 2010 11:10
Stjórn Samiðnar mótmælir harðlega vilja Landsvirkjunar til að hleypa kínverskum verktökum að framkvæmdum vegna Búðarhálsvirkjunar og hefur sent stjórn Landsvirkjun ályktun þess efnis. Þetta kemur fram á vefsíðu Samiðnar. Ályktunin hljóðar svo: "Samiðn fagnar ákvörðun Landsvirkjunar um að bjóða út byggingu Búðarhálsvirkjunar enda mun framkvæmdin hafa mikil og jákvæð áhrif á atvinnuástandið í bygginga- og mannvirkjagerð verði skynsamlega að verki staðið. Nú hafa borist fréttir af viðræðum Landsvirkjunar og kínverska fyrirtækisins CWE um aðkomu þess að framkvæmdunum og hefur Landsvirkjun lýst sérstökum áhuga á að fá tilboð frá CWE í framkvæmdina. Samiðn lýsir áhyggjum sínum af sérstökum vilja Landsvirkjunar til að fá CWE að framkvæmdunum þar sem reynslan segir okkur að kínversk verktakafyrirtæki muni fyrst og fremst nýta sinn eigin mannskap við framkvæmdirnar sem þesssar. Verði það niðurstaðan munu þau jákvæðu áhrif sem framkvæmdin getur haft á íslenskt efnahagslíf nánast þurrkast út. Þessum áformum Landsvirkjunar að sniðganga íslenska verktaka mótmælir Samiðn harðlega og mun beita öllum sínum áhrifum til að koma í veg fyrir að veitt verði atvinnuleyfi vegna byggingu virkjunar. Íslensk verktakafyrirtæki búa yfir mikilli reynslu við byggingu vatnsfallsvirkjana svo ekki er hægt að skýla sér á bak við að það sé verið að ná í sérfræðiþekkingu sem ekki er til staðar hérlendis. Samiðn skorar á Landsvirkjun að standa þannig að verki að sem mestar líkur séu á að verkefni við byggingu Búðarhálsvirkunar falli í hendur íslenskra verktaka og skapi sem flest störf fyrir Íslendinga og verði með þeim hætti kröftug innspýting í íslenskt efnahagslíf. Tilboðsverð á íslenskum verktakamarkaði eru mjög hagkvæm og því engin ástæða til að kalla eftir tilboðum frá Kína til að þvinga verð enn frekar niður."
Mest lesið Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Sjá meira