Hleðsla, Skyr.is og Ab-drykkur fengu gull í Danmörku 8. nóvember 2010 15:22 Snorri Steinn Guðjónsson handknattleikskappi á auglýsingamynd fyrir Hleðslu.
Hleðsla, Skyr.is og Ab-drykkur frá Mjólkursamsölunni hrepptu gullverðlaun í sínum flokkum í norrænni samkeppni mjólkurvara í Danmörku. Í tilkynningu segir að í síðustu viku fór fram samkeppni milli norrænna mjólkurvara („Scandinavian dairy contest"). Samkeppnin fór fram á Mjólkurvörusýningunni („Landsmejeriudstillingen") í Herning í Danmörku en keppnin fer fram annað hvert ár. Til að meta hvaða vörur skara fram úr eru teknir fyrir þættir eins og samsetning, bragðgæði og útlit vörunnar. Alls bárust í keppnina 1600 vörur frá Norðurlöndunum. Mjólkursamsalan sendi nokkuð úrval af vörum í samkeppnina og var þetta í 9. sinn sem íslenskur mjólkuriðnaður tekur þátt í henni. Vörur frá MS voru sigursælar á þessu móti en Skyr.is, Hleðsla og Ab-drykkur hrepptu gullverðlaun í sínum flokkum. „Það er mjög ánægjulegt hversu vel gekk í keppninni og gaman að sjá hversu frábæra fagmenn íslenskur mjólkuriðnaður á", segir Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri sölu- og markssviðs MS. „Skyr.is með jarðarberjabragði vann sinn flokk og fékk gullverðlaun og þar að auki heiðursverðlaun. Aðrar vörur frá MS áttu einnig góðu gengi að fagna en samtals fengu vörur MS 34 verðlaun, þar á meðal má nefna að LGG+ smáskammtarnir og Benecol fengu silfurverðlaun, Ostakaka með hindberjum hlaut bronsverðlaun auk þess sem allar bragðtegundir af KEA skyrdrykk fengu verðlaun. Nokkrir ostar voru einnig verðlaunaðir en þar má nefna Höfðingja og Gullost, Gouda ost, Gotta og Maríbó ost" segir Jón Axel.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira