Segir lántöku fyrir arði eðlilega Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. febrúar 2010 12:30 Stefán Már Stefánsson. Mynd/Stefán Karlsson
Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor og sérfræðingur í félagarétti við Háskóla Íslands, segir að lántaka til að greiða út arð til hluthafa sé í ákveðnum tilfellum eðlileg. Hann segist hins vegar ekki vita um nein dæmi um slíkt hér á landi þótt slíkt sé vel þekkt erlendis. Eins og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi tók Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, 4,2 milljarða króna lán hjá Landsbanka Íslands í september 2007 til að greiða út arð vegna góðs hagnaðar rekstrarárið 2006. Með öðrum orðum var ekki til handbært laust fé til að greiða arðinn út og því sló félagið lán til að greiða hluthöfum sínum, þeim Pálma og Jóhannesi inn á reikning félags þeirra Matthews Holding í Lúxemborg. Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við HÍ, segir að í ákveðnum tilvikum sé ekkert óeðlilegt við slíka lántöku sé hún samræmi við lög um hlutafélög og hafi hún verið samþykkt af hluthafafundi.„Ef það eru til frjálsir sjóðir í félaginu þá getur verið tímabundið alveg réttlætanlegt að taka lán til greiðslu arðs. Það getur verið að eignir séu bara hreinlega bundnar í félaginu og það sé ekki hægt að losa um þær til að greiða út arðinn. Þar fyrir utan má greiða út arð í fleiru en peningum. Það má afhenda hlutabréf eða skuldabréf ef því er að skipta," segir Stefán Már. Stefán segir að mikilvægt að arðurinn sé greiddur út á jafnréttisgrundvelli og í samræmi við fyrirmæli laga um hlutafélög. „Aðalatriðið er að þetta séu fjármunir sem safnast hafa saman vegna rekstrarafgangs fyrri ára. [... ] Það má ekki slá því föstu semsagt að lántaka í þessu skyni sé í sjálfu sér ólögmæt."„Ég þekki ekki beint dæmi hér á landi um þetta en erlendis þekkist þetta alveg. Og ég tel alveg víst að þetta hafi verið gert hérna, þó ég þekki það ekki sjálfur," segir Stefán Már Stefánsson, prófessor við lagadeild HÍ.
Tengdar fréttir Tóku lán fyrir arðgreiðslunni Rúmlega fjögurra milljarða króna arðgreiðsla sem Pálmi Haraldsson greiddi sér útúr fjárfestingarfélaginu Fons vegna góðs hagnaðar rekstrarárið 2006 var fengin að láni hjá Landsbankanum. 16. febrúar 2010 18:40 Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira
Tóku lán fyrir arðgreiðslunni Rúmlega fjögurra milljarða króna arðgreiðsla sem Pálmi Haraldsson greiddi sér útúr fjárfestingarfélaginu Fons vegna góðs hagnaðar rekstrarárið 2006 var fengin að láni hjá Landsbankanum. 16. febrúar 2010 18:40