Bókhaldsóreiða hjá Björgólfsfeðgum 12. janúar 2010 18:55
Skiptastjóri þrotabús Samsonar hefur undanfarna unnið að því að greiða úr flækjunni í þrotabúinu en það er hans hlutverk að gæta hagsmuna kröfuhafanna, þ.e þeirra sem lánuðu Björgólfsfeðgum peninga. Þeir eru ansi margir og kröfurnar í búið nema samtals 80 milljörðum króna. Það sem hefur torveldað störf skiptastjórans er að það vantar lánasamninga fyrir mörgum svimandi háum millifærslum. Meðal annars finnast ekki samningar vegna lána til fjögurra aflandsfélaga á Tortóla upp á 800 milljónir króna. Beðið er eftir upplýsingum frá starfsmönnum Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, varðandi eignarhaldið á þessum félögum, en allt bendir til að þau hafi einnig verið í eigu feðganna. Í bókhaldinu finnast millifærslubeiðnir þar sem er beðið um að millifæra ákveðna upphæð inn á tiltekinn reikning, síðan er sá sem skráður er skluldari lánsins er annar en sá sem fékk greiðslu vegna þess, en svo virðist sem ákveðinn hluti þeirra hafi farið í gegnum Landsbankann í Lúxemborg. Þær skýringar sem stjórn Samsonar, sem var skipuð Björgólfi Guðmundssyni, Sigþóri Sigmarssyni og Ágústi Leóssyni, gefur er að fjármálastjóri Samsonar hafi glímt við veikindi og því hafi bókhaldið ekki verið í lagi.Þrotabú Samsonar á einnig háa innstæðu hjá Landsbankanum í Lúxemborg, sem er í gjaldþrotameðferð. Hefur gætt nokkurs taugatitrings varðandi innstæðuna, en mörgum þykir óeðlilegt að félög sem tengjast Björgólfsfeðgum eigi að njóta forgangs, en innstæður eru forgangskröfur í þrotabú.Nú hafa 16 erlendir bankar, þ.á.m Commerzbank, krafist afhendingar á 380 milljóna króna innstæðu Samsonar Landsbankanum á Íslandi, en þrotabúið hafnar kröfunni þar sem málsástæða fyrir henni barst fyrir lok þess tíma sem heimilt var að lýsa kröfum í þrotabúið. Heildarkröfur í þrotabú Samsonar nema rúmlega áttatíu milljörðum króna. Þýski bankinn Commerzbank og suðurafríski bankinn Standard eiga kröfur samtals upp á 52,2 milljarða króna.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira