Laun á Íslandi 2006 með þeim hæstu í Evrópu 1. febrúar 2010 09:10
Árið 2006 voru laun á Íslandi, umreiknuð í evrur, með þeim hæstu í Evrópu. Aftur á móti ef tekið er tillit til jafnvirðisgildis, það er mismunandi verðlags, eru laun á Íslandi í mörgum tilvikum nær meðaltali Evrópusambandsríkjanna 27 og falla í sumum tilvikum undir það.Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vinnutími er að jafnaði langur á Íslandi miðað við ríki Evrópusambandsins og er hlutfall yfirvinnu hærra á Íslandi en í nokkru öðru landi sem könnunin nær til. Þá er hlutfall óreglulegra greiðslna af árslaunum að jafnaði lægra á Íslandi en í öðrum löndum.Árslaun kvenna eru lægri en árslaun karla hjá öllum þátttökuþjóðum könnunarinnar. Ef horft er til tímakaups mælist óleiðréttur launamunur kynjanna 21% árið 2006 á Íslandi. Í öðrum löndum könnunarinnar er óleiðréttur launamunur kynjanna á bilinu -2% til 30%. Í einu tilfelli eru konur að meðaltali með hærra tímakaup en karlar, það er í Tyrklandi þar sem launamunurinn er -2%.Þessar niðurstöður eru úr launakönnun sem Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, stendur fyrir á meðal aðildarþjóða sinna auk Íslands, Noregs og Tyrklands. Könnunin er framkvæmd á fjögurra ára fresti og var viðmiðunarár síðustu könnunar árið 2006. Niðurstöður hennar voru birtar í heild sinni á vef Hagstofu Evrópusambandsins á síðari hluta ársins 2009 en frekari grein er gerð fyrir helstu niðurstöðum könnunarinnar sem varða Ísland í nýju hefti Hagtíðinda um evrópskan samanburð á launum árið 2006.
Mest lesið Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Fyrsti vinnudagurinn eftir frí og níu góð ráð Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Góð ráð við slæmum þynnkudegi í vinnunni Atvinnulíf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Sátu alvarlega fundi um tómatsósu og guacamole Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Sjá meira