Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 12% milli ára í október 8. nóvember 2010 11:17
Erlendir ferðamenn voru 12,2% fleiri nú í október síðastliðnum samanborið við október í fyrra. Þannig fóru rúmlega 34 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð nú í október samanborið við rúm 30 þúsund árið á undan. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þetta sé mesta fjölgun erlendra gesta sem orðið hefur á einum mánuði m.v. sama mánuð árið á undan á þessu ári og er þetta annar stærsti októbermánuður frá upphafi þess tímabils sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum. Þannig voru erlendir ferðamenn lítið eitt fleiri í október árið 2007, eða 34.175 á móti 34.069. Talningar stofnunarinnar ná yfir allar brottfarir gesta frá landinu um Leifsstöð en það var Ferðamálastofa sem sendi frá sér fréttatilkynningu um þetta síðastliðinn föstudag. Ef tekið er mið af fyrstu tíu mánuðum hvers árs frá því að talningar Ferðamálastofu hófust má sjá að árið í ár kemur mjög vel út í samanburðinum hvað fjölda erlendra ferðamanna varðar. Í raun er þetta þriðja fjölmennasta árið sem er sigur fyrir íslenska ferðaþjónustu, sér í lagi miðað við þær náttúruhamfarir sem urðu hér fyrr á árinu og höfðu veruleg áhrif á flugsamgöngur, og þar með komu erlendra gesta til landsins. Frá áramótum talið hafa þannig farið rúmlega 419 þúsund erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í ár samanborið við rétt tæp 426 þúsund í fyrra og jafngildir þetta fækkun upp á 1,6%. Ljóst er að ferðamönnum hefði fækkað mun minna ef gosið hefði ekki sett strik í reikninginn, og ekki er ólíklegt að þá hefði verið um fjölgun að ræða.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira