Helgar tilgangurinn meðalið? 24. mars 2010 06:00 Nú hafa ýmsir fulltrúar Samfylkingarinnar látið hafa eftir sér stuðning við áform um að E.C.M. Program ltd., fyrirtæki sem í raun er einkaher, fái aðstöðu á Suðurnesjum. Ef rétt er eftir þeim haft þá er mér verulega misboðið. Ég veit vel að það er atvinnuleysi á Suðurnesjum - eins og víðar um land og að þar eru margir fylgjandi því að þetta fyrirtæki fái leyfi og fyrirgreiðslu. Ég leyfi mér hins vegar að efast um að nokkur raunveruleg störf séu þarna að baki enda allt mjög óljóst um fyrirtækið. Veiting slíks leyfis myndi brjóta í bága við stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar þar sem segir að gera eigi Ísland að vettvangi fyrir friðarumræðu og leggja áherslu á baráttu fyrir friði og afvopnun í heiminum. Einn atvinnulaus maður er einum manni of mikið. Atvinnuleysi er böl. Það afsakar þó ekki þjónkun við þá sem hafa stríðsrekstur að atvinnu. Afrakstur slíkrar starfsemi er enn þá verri en atvinnuleysisbölið. Við skulum heldur ekki gleyma því að þegar staða einnar þjóðar er eins og þeirrar íslensku nú þá flykkjast að alls kyns fjárplógsmenn sem sjá tækifæri til þess að græða á neyð smáþjóðar. Við þurfum að vanda okkur í atvinnuuppbyggingunni. Þó að við séum hnípin þjóð í vanda, megum við ekki selja sálu okkar. Við eigum að hafa lært af reynslunni þegar kemur að skyndilausnum. Við getum byggt upp atvinnu án hjálpar fyrirtækja á sviði herþjónustu. Samfylkingarfélagið í Reykjavík heldur fund um þetta mál og önnur atvinnumál á Hallveigarstíg 1, kl. 20.30 í kvöld. Þangað eru allir velkomnir. Höfundur er varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr. Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Sjá meira
Nú hafa ýmsir fulltrúar Samfylkingarinnar látið hafa eftir sér stuðning við áform um að E.C.M. Program ltd., fyrirtæki sem í raun er einkaher, fái aðstöðu á Suðurnesjum. Ef rétt er eftir þeim haft þá er mér verulega misboðið. Ég veit vel að það er atvinnuleysi á Suðurnesjum - eins og víðar um land og að þar eru margir fylgjandi því að þetta fyrirtæki fái leyfi og fyrirgreiðslu. Ég leyfi mér hins vegar að efast um að nokkur raunveruleg störf séu þarna að baki enda allt mjög óljóst um fyrirtækið. Veiting slíks leyfis myndi brjóta í bága við stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar þar sem segir að gera eigi Ísland að vettvangi fyrir friðarumræðu og leggja áherslu á baráttu fyrir friði og afvopnun í heiminum. Einn atvinnulaus maður er einum manni of mikið. Atvinnuleysi er böl. Það afsakar þó ekki þjónkun við þá sem hafa stríðsrekstur að atvinnu. Afrakstur slíkrar starfsemi er enn þá verri en atvinnuleysisbölið. Við skulum heldur ekki gleyma því að þegar staða einnar þjóðar er eins og þeirrar íslensku nú þá flykkjast að alls kyns fjárplógsmenn sem sjá tækifæri til þess að græða á neyð smáþjóðar. Við þurfum að vanda okkur í atvinnuuppbyggingunni. Þó að við séum hnípin þjóð í vanda, megum við ekki selja sálu okkar. Við eigum að hafa lært af reynslunni þegar kemur að skyndilausnum. Við getum byggt upp atvinnu án hjálpar fyrirtækja á sviði herþjónustu. Samfylkingarfélagið í Reykjavík heldur fund um þetta mál og önnur atvinnumál á Hallveigarstíg 1, kl. 20.30 í kvöld. Þangað eru allir velkomnir. Höfundur er varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík.
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar