Sendi sérstökum saksóknara bréf um alvarleg veikindi Steingríms Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. janúar 2010 18:30 Steingrímur Wernersson. Mynd úr safni.
Steingrímur Wernersson sem átti fjárfestingarfélagið Milestone með Karli bróður sínum hefur undanfarin tvö ár glímt við alvarleg veikindi og ekki sinnt fjárhagslegum málefnum sínum, að því er fram kemur í bréfi lögmanns hans til embættis sérstaks saksóknara. Steingrímur Wernersson hefur stöðu sakbornings í rannsókn sérstaks saksóknara á Milestone og Sjóvár en embættið hefur frá því í júlí á síðasta ári rannsakað hvort færsla á eignum úr móðurfélaginu Milestone inn í Sjóvá á síðastliðnum tveimur árum varði við lög um hlutafélög, lög um starfsemi tryggingafélaga eða kunni hugsanlega að falla undir umboðssvik. Sérstakur saksóknari tók skýrslu af Steingrími Wernerssyni hinn 5. júlí á síðasta ári í tengslum við rannsókn á Milestene og Sjóvá. Við skýrslutöku sakaði Steingrímur Karl bróður sinn um ýmis alvarleg auðgunarbrot, en báðir hafa þeir stöðu sakborninga í rannsókninni. Steingrímur greindi ítarlega frá samskiptum við Karl bróður sinn og sagði hann hafa útilokað sig frá rekstri Milestone, sagði hann siðblindan og kallaði hann einræðisherra. Í bréfi sem Stefán Bragi Bjarnason, lögfræðingur og vinur Steingríms sem var jafnframt viðstaddur skýrslutökuna, sendi embætti sérstaks saksóknara hinn 3. desember síðastliðinn og fréttastofa hefur undir höndum, segir hann að Steingrímur hafi átt við talsverð veikindi að stríða og verið undir læknishendi bæði hér á landi og erlendis frá árinu 2008. Þá segir Stefán í bréfinu að Steingrímur hafi gefið út allsherjarumboð til handa sér þar sem hann hafi ekki getað sinnt fjármálum sínum sjálfur vegna veikindanna. Þá segir Stefán í bréfinu: „Steingrímur nafngreinir fjölda manna í skýrslutökunni en þar má þó helst telja Guðmund Ólason, Karl Wernersson og Jóhannes Sigurðsson. Að auki sakar Steingrímur umrædda menn um ýmis alvarleg auðgunarbrot gegn almennum hegningarlögum. Til að taka allan vafa þar um þá deilir undirritaður ekki sömu skoðunum á ofangreindum mönnum og Steingrímur né hef ég í mínum störfum fyrir Steingrím rekist á nokkuð það efni sem styður að þeir hafi gerst sekir um brot gegn almennum hegningarlögum." Bréf Stefáns er meðal gagna í málinu, en lögmenn sakborninga eiga rétt á öllum gögnum í síðasta lagi þremur vikum eftir að þau verða til. Rannsókn sérstaks saksóknara stendur enn yfir og henni miðar vel.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi,“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Fleiri fréttir Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Sjá meira