Tindur Eyjafjallajökuls snjóhvítur 21. ágúst 2010 09:46 Eins og sjá mátti á vefmyndavél Mílu þá er hátindurinn snjóhvítur. Mynd / mila.is
Hátindur Eyjafjallajökuls er á ný orðinn fannhvítur eftir að þar snjóaði í nótt. Fjallið hefur allt verið öskugrátt frá lokum eldgossins í vor en gosið í toppgíg jökulsins stóð frá 14. apríl til 7. júní. Eftir hlýindi nánast í allt sumar kólnaði nokkuð á landinu í gær þegar vindur snerist til ákveðinnar norðanáttar og greinilegt að hitastig hefur farið niður fyrir frostmark á hæstum fjöllum sunnanlands í nótt. Snjólínan á Eyjafjallajökli var þó tiltölulega hátt í morgun, eða í yfir 1.200 metra hæð. Líklegt er að margir fagni því að sjá jökulinn skarta kórónu sinni á ný og rifja þá kannski einhverjir upp ljóð Jónasar Hallgrímssonar, Gunnarshólma, sem hefst á þessum línum: "Skein yfir landi sól á sumarvegi/ og silfurbláan Eyjafjallatind/ gullrauðum loga glæsti seint á degi./ Við austur gnæfir sú hin mikla mynd/ hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar/ í himinblámans fagurtæru lind." Eldfjallið má enn sjá á vefmyndavélum Mílu.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Innlent Fleiri fréttir Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Sjá meira