Egilsson í greiðslustöðvun 18. júní 2009 07:22 Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Egilsson.
Stjórn Egilsson hf., sem rekur meðal annars Office 1 búðirnar, hefur ákveðið að óska eftir greiðslustöðvun meðan unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að greiðslustöðvunin sé framkvæmd í samráði við stærsta kröfuhafa Egilsson hf., Nýja Landsbanka Íslands. Liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins er að fá ráðgjafa til að leggja heildstætt mat á virði félagsins, útfæra leiðir til að tryggja framtíðar rekstur félagsins og tryggja jafna hagsmuni allra lánardrottna. „Ætlunin er að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagins fyrir lok ágúst, en það er full ætlun eigenda og kröfuhafa að tryggja framtíð rekstrarins. Stjórn og stjórnendur Egilsson stefna að því að leggja fram endanlegar tillögur og samninga við lánardrottna á næstu vikum," segir í tilkynningunni. Þá segir að Egilsson hafi verið fjármagnað að mestu í erlendri mynt eins og flest íslensk fyrirtæki. „Eiginfjárstaða félagsins þróaðist yfir í neikvæða stöðu eftir hrun íslensku krónunnar um rúmlega 50% enda hefði þurft óeðlilega háa eiginfjárstöðu til að standa undir slíkum hamförum." „Neikvæð þróun íslensku krónunnar, bankahrunið og gjaldþrot Pennans og A4 hefur kallað á viðbrögð af hálfu félagsins til að mæta breyttum aðstæðum. Eftir fall bankanna og tímabundna lokun gjaldeyrisborða dró verulega úr trausti og greiðslukjörum erlendra birgja, sem margir kröfðust uppgreiðslu útistandandi skulda og fyrirframgreiðslu vegna nýrra innkaupa. Eftir fall Pennans og A4 brugðust innlendir birgjar við með hertum útlánakröfum m.a. lækkuðum úttektarheimildum og styttri greiðslufresti," segir einnig í tilkynningunni og því bætt við að þessi þróun hafi valdið sjóðstreymisvanda á sama tíma og viðskiptabanki Egilsson hefur ekki getað veitt frekari fyrirgreiðslu m.a. vegna stöðunnar sem íslenskir bankar eru enn að glíma við.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira