FME berast fjölmargar ábendingar frá almenningi 25. mars 2009 10:32
Ábendingar neytenda, sem og ábendingar eftirlitsskyldra aðila og starfsmanna á þeirra vegum, eru mikilvægur og nauðsynlegur þáttur í sérhverju eftirliti. Fjármálaeftirlitinu hafa á undanförnum mánuðum borist fjölmargar ábendingar, sem margar hverjar hafa orðið grundvöllur að frekari rannsóknum. Í frétt um málið á vefsíðu FME segir að allar ábendingar og kvartanir sem berast Fjármálaeftirlitinu eru metnar og skoðað hvort tilefni sé til nánari athugunar. Telji Fjármálaeftirlitið ástæðu til að taka mál til athugunar er það gert á grundvelli almenns eftirlits, þ.e. hvort starfsemi viðkomandi eftirlitsskylds aðila sé í samræmi við lög, reglur og eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, en Fjármálaeftirlitið hefur ekki úrskurðarvald í einstökum ágreiningsmálum. Þrátt fyrir að kvörtun eða ábending frá einstaklingi eða fyrirtæki leiði til slíkrar athugunar, telst sá hinn sami ekki sjálfkrafa aðili máls og ekki er víst að slík athugun leiði sjálfkrafa til lausnar máls í tilviki viðkomandi aðila. Fjármálaeftirlitið leitast einnig við að veita almennar upplýsingar m.a. um hugsanlega réttarstöðu aðila eða leiðbeiningar um þau úrræði sem eru til staðar til að hægt sé ná fram rétti sínum, m.a. hvaða aðili eða aðilar fari með úrskurðarvald og/eða dómsvald í þeirra málum. Fólk er hvatt til þess að koma fram undir réttu nafni, en Fjármálaeftirlitið tekur þó einnig við nafnlausum ábendingum. Fjármálaeftirlitið leggur áherslu á trúnað við þá sem koma fram með ábendingar, en getur þó ekki ábyrgst nafnleynd, ef lög mæla fyrir um annað. Þess skal þó getið að starfsmenn Fjármálaeftirlitsins eru bundnir ríkri trúnaðarskyldu um allt það sem þeir komast að í störfum sínum. Fjármálaeftirlitið þakkar fyrir allar þær ábendingar sem þegar hafa borist, og hvetur alla til þess að halda áfram að veita því liðsinni í þeim umfangsmiklu rannsóknum sem nú fara fram og koma á framfæri upplýsingum um hugsanleg brot á lögum sem gilda um fjármálamarkaði. Þannig fáum við mikilvæga aðstoð við að upplýsa um möguleg brot framin í leynd sem kunna að hafa valdið almenningi og atvinnulífi tjóni. Þannig stuðlum við að góðum viðskiptaháttum, trausti á fjármálastarfsemi og öflugri neytendavernd, til framtíðar.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira