Vaxtagreiðslur til útlendinga í ár nema 60 milljörðum 13. maí 2009 15:15
Greining Kaupþings áætlar að vaxtagreiðslur til útlendinga í íslenskum skuldabréfum og innistæðum nemi um 60 milljörðum kr. á árinu. Gengishagnaður af skuldabréfum gæti gert þessa tölu umtalsvert hærri eða 30 milljarða kr. í viðbót, samtals 90 milljarða kr. Til að setja þessa tölu í samhengi segir greiningin að í spá Seðlabankans í síðustu Peningamálum er gert ráð fyrir 10,8% afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum eða 150 milljörðum kr. „Þessi fjárhæð hrekkur skammt og gerir lítið annað en duga fyrir fyrrnefndum vaxtagreiðslum og gengishagnaði," segir í Markaðspunktum greiningarinnar. Fram kemur að stórir gjalddagar eru á íslenskum krónueignum í júní og því viðbúið að verulegur þrýstingur verði á krónunni ef erlendir aðilar hyggjast skipta vaxtagreiðslum yfir í gjaldeyri líkt og í mars s.l.. Greiningin áætlar gróflega að heildarútflæðið gæti numið allt að 18 milljörðum kr. í júní þegar allt er talið. Að mati greiningarinnar eiga eigendur krónubréfa möguleika á því að leysa til sín um 11 milljarða kr. í vaxtagreiðslur sem er svipuð upphæð og í mars. Á gjalddaga í júní er ríkisbréfaflokkurinn RB 09 þar sem útlendingar eiga 69 milljarða kr. að mati Lánasýslu Ríkisins. Auk þess að mega breyta vöxtum í gjaldeyri má sömuleiðis breyta gengishagnaði af bréfunum í gjaldeyri. Gróft mat á gengishagnaðinum er upp á 5 til 7 milljarða kr.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira