Helmingur stærstu fyrirtækja landsins ráða í ný störf 7. apríl 2009 12:24 Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Rúmlega helmingur stærstu fyrirtækja landsins ætlar að ráða í ný störf á þessu ári. Þetta kemur fram í könnun Atvinnuþjónustu Háskólans í Reykjavík. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að nokkur hreyfing sé vinnumarkaði um þessar mundir og um 400 störf í boði. Könnun Atvinnuþjónustu Háskólans í Reykjavík fór fram á Netinu og var send á stjórnendur 100 stærstu fyrirtækja landsins. Þar kemur fram að tæpur helmingur fyrirtækjanna reiknar með að endurráða í þau störf sem losna á næstu 12 mánuðum. Rúmur helmingur ætlar að ráða í ný störf á þessu ári og þar af reikna 80% með að ráða í framtíðarstarf og 70% fólk til sumarstarfa. Um 12% þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni ætla ekki að ráða nýtt fólk til starfa á næstu 12 mánuðum. Þá kemur fram í könnuninni að mest eftirspurn sé eftir fólki með viðskipta- og verkfræðimenntun. Um 17.500 manns eru nú á atvinnuleysisskrá samkvæmt tölum vinnumálastofnunar og hefur atvinnulausum fækkað um 500 síðustu daga. Samkvæmt upplýsingum frá vinnumálastofnun skýrist fækkunin þó fyrst og fremst af því að fólk hefur gleymt að staðfesta áframhaldandi atvinnuleit á vef stofnunarinnar. Gissur Pétursson, forstjóri vinnumálastofnunar, segir að nú séu um 400 störf í boði. „Það er heilmikið af lausum störfum í boði og nokkur hreyfing á vinnumarkaði þó svo menn ætli að svo sé ekki," segir Gissu. „Það eru störf af ýmsu tagi. Það eru 400 störf á skrá á vefnum hjá okkur. Þetta eru þjónustustörf og störf í lægri launaskalanum en störf engu að síður og afskaplega mikilvægt að þeim sé sinnt og líka mikilvægt fyrir þann sem er atvinnulaus að hafa eitthvað fyrir stafni."
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira