Sýnir styrk og getu viðskiptabankanna 2. apríl 2009 20:22 Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans.
Landsbankinn, Íslandsbanki og Nýi Kaupþing banki komu sér saman í dag um lánveitingu til að tryggja áframhaldandi framkvæmdir við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss. Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans segir að niðurstaðan sýni glögglega styrk og getu íslensku viðskiptabankanna til þess að takast á við og leysa úr flóknum og fjárfrekum viðfangsefnum. Bankarnir komu sér saman um lánveitingu til verkefnisins að fjárhæð 14,5 milljarða króna, en sú fjárhæð mun duga til að ljúka byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins miðað við fyrirliggjandi áætlanir Austurhafnar TR. Þátttaka Landsbankans í lánveitingunni endurspeglar stærð og hlutfallsleg umsvif bankans, en hlutdeild hans í lánsfjárhæðinni nemur nærri 8 milljörðum króna, að fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum. Auk þessa mun bankinn veita margvíslega fyrirgreiðslu vegna verkframkvæmdanna. Ásmundur segir að það sé Landsbankanum gleðiefni að þessu uppbyggingarverkefni hafi nú verið tryggður farsæll endir. Stefnt er að því að taka Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð í notkun í apríl 2011. Í tilkynningu frá Austurhöfn-TR kom fram í dag að framhald verkefnisins hafi verið tryggt með því Austurhöfn-TR hafi eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu hússins, ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2.
Tengdar fréttir Tónlistarhús tilbúið 2011 - kostar 14,5 milljarða króna Stefnt er að því að taka Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð í notkun í apríl 2011. Í tilkynningu frá Austurhöfn-TR kemur fram að framhald verkefnisins hafi verið tryggt með því Austurhöfn-TR hafi eignast 2. apríl 2009 15:31 Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira
Tónlistarhús tilbúið 2011 - kostar 14,5 milljarða króna Stefnt er að því að taka Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð í notkun í apríl 2011. Í tilkynningu frá Austurhöfn-TR kemur fram að framhald verkefnisins hafi verið tryggt með því Austurhöfn-TR hafi eignast 2. apríl 2009 15:31