Úrræðum beitt gegn fyrirtækjum sem skila ekki ársreikningum 3. apríl 2009 18:54
Ársreikningaskrá undirbýr kæru til skattrannsóknarstjóra vegna málefna BM Vallár og annarra félaga sem ekki hafa skilað ársreikningum til opinberrar birtingar svo árum skipti. Á sama tíma er BM Vallá að hefja mál gegn ársreikningaskrá. Í lögum um ársreikninga, sem ársreikningaskrá starfar eftir, segir að hlutafélögum og einkahlutafélögum sé skylt að leggja fram ársreikninga sína til opinberrar birtingar. Undanfarin ár hafa mörg félög komist upp með að fylgja reglunum ekki eftir. Í alvarlegustu tilvikunum verður öðrum úrræðum beitt. Heimildir fréttastofu herma að í undirbúningi sé kæra til skattrannsóknarstjóra vegna málefna nokkurra félaga, en meðal þeirra er BM Vallá. Ef ársreikningi er ekki skilað þrjú ár í röð er hægt að grípa til enn grófara úrræðis sem er að slíta félaginu, en viðskiptaráðuneytið hefur heimild til þess. Með því er átt við ábyrgð eigenda á skuldbindingum félagsins verði gerð ótakmörkuð. BM Vallá hefur aldrei skilað ársreikningi til ársreikningaskrár. Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður félagsins, sagði í samtali við fréttastofu að BM Vallá hefði einu sinni unnið dómsmál gegn ársreikningaskrá vegna þessa og nú sé verið að hefja nýtt mál. Forsvarsmenn BM Vallá telji að embættisfærsla starfsmanna ársreikningaskrár sé ólögmæt og að stundum seilist þeir út fyrir embættistakmörk sín. Vert er að taka fram að BM Vallá hefur staðið í skilum með ársreikninga til skattayfirvalda en Víglundur segir að opinber birting hjá ársreikningaskrá sé bara til þess fallin að keppinautar muni hnýsast í þá.
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira