Seðlabankinn leyfir gengi krónunnar að gossa niður 30. mars 2009 12:27 „
Ef tekið er mið af því hversu mikið krónan hefur veikst frá 11. mars í lítilli veltu (1,7 milljarðar kr. á millibankamarkaði á tímabilinu) er það sterk vísbending um að Seðlabankinn hafi haldið sig til hlés á gjaldeyrismarkaði undanfarnar vikur. Ef sú er raunin er það athyglisvert í ljósi þeirrar miklu áherslu sem bankinn leggur á gengisstöðugleika." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka um gengislækkunarhrinu sem staðið hefur nær óslitið frá 11. mars s.l. Krónan hefur veikst um nálega hálft prósent gagnvart evru það sem af er morgni og virðist lítið lát á hrinunni. Í gengislækkun krónu undanfarna 19 daga hefur raunar öll styrking þeirra 7 vikna sem á undan fóru gengið til baka. Gengi evru er nú 161,7 kr. en var 141,3 kr. í dagslok 11. mars. Þetta er Seðlabankanum væntanlega nokkurt áhyggjuefni, að sögn greiningarinnar, enda lagði peningastefnunefnd bankans á það áherslu við síðustu vaxtaákvörðun að mikilvægt væri að halda gengi krónunnar stöðugu í ljósi þess hversu viðkvæmur efnahagur heimila, fyrirtækja og banka væri gagnvart gengissveiflum. Gengisstöðugleiki er þannig yfirlýst markmið peningastefnunnar til skemmri tíma þótt verðbólgumarkmiðið sé eftir sem áður langtímamarkmið hennar. Í heild nam velta á millibankamarkaði 3,8 milljörðum króna í janúar og tæpum 4 milljörðum kr. í febrúar. Seðlabankinn stóð að baki ríflega þriðjungi þessarar veltu í hvorum mánuði fyrir sig og alls nam sala hans á gjaldeyri í mánuðum tveimur 2,9 miljörðum kr.Í ljósi 17% styrkingar krónu gagnvart evru frá áramótum til febrúarloka og lítillar veltu á markaði má gera því skóna að inngrip bankans hafi átt töluverðan þátt í gengisþróun á tímabilinu. Raunar má segja að slík gjaldeyrishöft, og þar með útilokun spákaupmanna frá markaði, séu forsenda fyrir því að inngrip á gjaldeyrismarkaði hafi veruleg áhrif.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira