Nýi Kaupþingsbankinn sakaður um sóðaleg vinnubrögð 3. apríl 2009 18:42
Mikil óánægja er meðal kröfuhafa Pennans eftir að fyrirtækið var sett í gjaldþrotameðferð í gær að kröfu Nýja Kaupþings. Bankinn keypti rekstur fyrirtækisins og stofnaði í kringum hann nýja kennitölu. Kröfuhafar saka bankann um kennitöluflakk og sóðaleg vinnubrögð. Nýja Kaupþing tók yfir rekstur Pennans þann 20. mars síðastliðinn eftir að viðræður um endurskipulagningu fyrirtækisins runnu út í sandinn. Penninn rekur meðal annars verslanir Eymundsson og bókabúð Máls og menningar. Í gær ákvað Kaupþing hins vegar að færa reksturinn yfir á nýja kennitölu og á sama tíma var sú gamla sett í gjaldþrot. Nú þegar hefur verið settur skiptastjóri yfir þrotabúi „gamla" Pennans. Verslanir Pennans verða því reknar áfram undir nýrri kennitölu en fyrirtækið skipti formlega um nafn í morgun samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá. Það heitir nú Penninn á Íslandi ehf. Segja má að Kaupþing hafi beitt hérna sígildu kennitöluflakki og þannig skilið marga kröfuhafa „gamla" Pennans eftir með sárt ennið. Einn kröfuhafi sem fréttastofa talaði við í dag sagði það með ólíkindum að ríkisbanki beitti slíkum aðferðum og talaði um sóðaleg vinnubrögð. Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru taldar litlar líkur á því að eignir í þrotabúi Pennans dugi til að greiða allar skuldir. Kröfuhafar verða því væntanlega að afskrifa tugi milljóna króna. Fram kemur í svari Kaupþings við fyrirspurn fréttastofu vegna málsins að ekki hafi verið forsvaranlegt að setja meiri pening í fyrirtækið. Með því að fara þessa kennitöluleið hafi 300 störfum verið bjargað. Helgi Júlíusson, forstjóri Pennans, sagði í samtali við fréttastofu í dag að reynt verði að semja við kröfuhafa og ná ásættanlegri niðurstöðu.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira