Rekstur Eik gekk vel í fyrra þrátt fyrir erfið skilyrði 3. apríl 2009 15:05
Rekstur Eik fasteignafélags gekk mjög vel á síðasta ári þrátt fyrir mjög erfið skilyrði og mikil umbrot í íslensku fjármálaumhverfi. Tap af rekstrinum nam rúmlega 36 milljónum kr. Eik fasteignafélag hf. birti í dag ársuppgjör fyrir árið 2008 að loknum stjórnarfundi þar sem reikningar félagsins voru samþykktir. Gríðarleg veiking íslensku krónunnar skaðaði jafnt fyrirtæki sem einstaklinga og í kjölfar hennar fylgdi tæplega 20% verðbólga. Í kjölfarið féll verð á atvinnuhúsnæði og seljanleiki þess er mjög lítill. Í tilkynningu segir að miðað við ofangreint verður ekki annað sagt um stöðu Eikar fasteignafélags en að hún sé góð. Félagið stýrði gjaldmiðlaáhættu sinni vel og hefur því ekki lent í vandræðum vegna falls krónunnar. Þeir leigusamningar sem ekki eru tengdir gjaldmiðlum eru nær undantekningarlaust annaðhvort verðtryggðir með vísitölu neysluverðs eða byggingarvísitölu. Áhrif verðbólgu eru því mjög takmörkuð. Í þessu erfiða árferði varð hagnaður félagsins neikvæður um 31,6 milljónir króna og arðsemi eigin fjár var neikvæð um 1,25%, sem verður að teljast vel ásættanlegt í gjörningaveðri því sem geisar í íslensku efnahagslífi. Veltan á árinu jókst um 24% og var 1,8 milljarðar króna. „Eftir hið viðburðaríka ár 2008 með yfirtöku ríkisins á þremur stærstu viðskiptabönkunum, gríðarlegri veikingu krónunnar og verðbólgu upp á tæp 20% er ekki annað hægt að segja en að við séum mjög sátt við útkomuna á síðasta ári," segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf. „Staða félagsins er sterk og við höfum lagt áherslu á að verja félagið gagnvart þeim aðstæðum sem eru á fjármálamarkaði. Félagið er með mikið eigið fé og sterka sjóðstöðu en engu síður er ljóst að eitt af helstu verkefnum félagsins á árinu 2009 verður endurfjármögnun. Rúmlega 500 milljóna króna eingreiðslulán er á gjalddaga um mitt árið og munu reglubundnar afborganir nema svipaðri fjárhæð. Þar sem virðisútleiguhlutfallið hefur lækkað og leigutekjur félagsins hafa dregist saman er ljóst að eingreiðslulánið þarf að endurfjármagna að fullu og hluta af reglubundnum afborgunum. Af framansögðu er ég mjög bjartsýnn á framtíð félagsins því að rekstur þess hefur gengið vonum framar við mjög erfiðar aðstæður."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira