Unnið að lausn krónueigna 3. apríl 2009 06:30 Erlendir fjárfestar sem sitja fastir með krónubréf hér hafa skoðað lánveitingar til íslenskra stórfyrirtækja. Fréttablaðið/
Í skoðun er að erlendir krónubréfaeigendur fjárfesti í íslenskum stórfyrirtækjum fyrir tugi milljarða. Þannig yrði undið ofan af krónustöðum í Seðlabankanum. „Eftir kortlagningu krónueigna síðasta haust komst Seðlabankinn að þeirri niðurstöðu að hættan á fjármagnsflæði gæti valdið óstöðugleika. Takmarkanir á fjármagnshreyfingar hafa tryggt stöðugleika í viðskiptum og skapað aðstöðu til að vinna á undirliggjandi vanda. Það verður gert með langtímahagsmuni að leiðarljósi,“ segir Freyr Hermannsson, sérfræðingur hjá Seðlabankanum, um þá vinnu sem staðið hefur yfir síðan fyrir áramót um leiðir til að leysa krónustöðu erlendra aðila. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir margar leiðir til að losa um stöðurnar. Tregða sé í stjórnkerfinu að ganga í málið. Við innleiðingu gjaldeyrishaftanna í nóvember var komið í veg fyrir að eigendur krónubréfa innleystu þau og flyttu fjármagn úr landi. Krónuinnistæður erlendra aðila námu þá fjögur hundruð milljörðum króna. Nær engin breyting hefur orðið á því. Rætt hefur verið um að krónubréfaeigendur sem sitja fastir hér með 50 til 80 milljarða í krónubréfum losi um stöður sínar með kaupum á skuldabréfum íslenskra stórfyrirtækja en þeir sem eigi lægri fjárhæðir kaupi hlutabréf fyrirtækja með sterka alþjóðlega tengingu. Greitt yrði fyrir með krónum og leiðirnar því ekki í andstöðu við gjaldeyrishöftin. Skuldabréf fyrirtækja á borð við Landsvirkjun og Norðurál, Marel Food Systems og stoðtækjafyrirtækið Össur hafa verið nefnd sem fjárfestingarkostir. Gjalddagar yrðu eftir allt að fimm ár og lánin greidd í uppgjörsmynt félaganna, Bandaríkjadölum og evrum. Iðnaðarráðherra styður að þessi leið verði farin, samkvæmt upplýsingum þaðan. Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar, segir málið hafa verið reifað um áramót. Landsvirkjun skoði fjölbreyttar fjármögnunarleiðir til að takast á við ný verkefni og vegna endurfjármögnunar. Einn heimildarmanna Fréttablaðsins sagði Landsvirkjun geta brotið ísinn og undið hratt ofan af krónubréfunum í kjölfarið. Ekki er útilokað að hreyfing komist á málið eftir að breska fjármálafyrirtækið Oliver Wyman lýkur verðmati sínu á efnahagsreikningi bankanna á næstu vikum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. jonab@markadurinn.is
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira