Actavis: Borgar 55 milljarða í vexti Ingimar Karl Helgason. skrifar 9. október 2009 18:33
Lyfjafyrirtækið Actavis tapaði þrjátíu og fjórum milljörðum króna í fyrra og greiddi fimmtíu og fimm milljarða króna í vexti. Félagið er skuldasettasta fyrirtæki landsins og skuldaði tæpa þúsund milljarða í árslok 2008. Hugmyndir eru um að skrá félagið í kauphöll að nýju. Stærsta skuldsetta yfirtaka Íslandssögunnar var þegar Björgólfur Thor Björgólfsson, keypti út aðra hluthafa í Actavis, í hittiðfyrra. Félagið var í kjölfarið tekið af markaði. Félagið tapaði sem nemur tæpum þrjátíu og fjórum milljörðum króna í fyrra, samkvæmt ársreikningi síðasta árs. Skuldir eru samkvæmt reikningnum um 720 milljörðum íslenskra króna. Þær eru þó hærri eftir því sem næst verður komist um þúsund milljarðar króna. Það skýrist af ýmsum skuldum innan samstæðunnar, sem ekki er fjallað um í reikningnum. Vaxtakostnaður félagsins í fyrra, nam 55 milljörðum króna; sem er ríflega helmingur þess sem ríkið greiðir í vexti á næsta ári af öllu sínu. Enn fremur er þetta drjúgum meira en kostar að reka Landspítalann í eitt ár. Greint er frá fjórum hugmyndum um framtíð félagsins í ársreikningi 2008. Ein er að Actavis sameinist öðru stóru lyfjafyrirtæki, taki yfir annað félag, verði hlutað í sundur eða að Actavis verði skráð í kauphöll að nýju. Ekki hefur frést um ákvörðun, en Merrill Lynch bankinn hefur verið fenginn til ráðgjafar um kostina. Björgólfur Thor Björgólfsson, keypti Actavis. En þaðan og til Björgólfs er löng keðja félaga. Actavis hf Actavis Group PTC ehf Actavis Group hf Actavis eignarhaldsfélag ehf Actavis Pharma Holding 5 Actavis Pharma Holding 4 Actavis Pharma Holding 3 Actavis Pharma Holding 2 Actavis Pharma Holding 1 Novator Pharma S.á.rl. Þar að baki er félagið Novator Pharma Holdings Limited, sem skráð er á Tortola, á bresku Jómfrúreyjum. Lengra komumst við ekki, en ekki vitum við betur en að baki þessu öllu standi Björgólfur Thor Björgólfsson.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira