Innistæðubréf hækka vextina á millibankamarkaðinum 9. október 2009 11:58
Útgáfa innstæðubréfa, sem nú nemur 50 milljörðum kr., virðist farin að hafa áhrif á skammtímavexti á millibankamarkaði. Í gær hækkuðu REIBOR-vextir nokkuð og eru mánaðarvextir nú 8,75%. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að Seðlabankanum gæti því orðið að þeirri ósk sinni á næstunni að skammtímavextir í fjármálakerfinu færist að innlánsvöxtum bankans, en það var megintilgangur útgáfu 28 daga innstæðubréfa. Hinsvegar hafa sáralitlar breytingar orðið á óverðtryggða vaxtaferlinum á skuldabréfamarkaði í morgun. Má ætla að auknar væntingar um vaxtalækkun eftir birtingu fundagerðar peningastefnunefndar hafi vegið upp hækkun millibankavaxtanna í gær. Seðlabankinn mun halda útboð á ríkisvíxlum næstkomandi þriðjudag og verður forvitnilegt að sjá hver niðurstaða þess verður í ljósi tíðinda gærdagsins. Í víxlaútboði septembermánaðar voru flatir vextir tekinna tilboða 8,53% að meðaltali, sem voru hæstu meðalvextir í víxlaútboði frá því í apríl. Niðurstaðan á þriðjudag er líkleg til að gefa til kynna hvort vegur þyngra í hugum fjárfesta, mýkri tónn nýs Seðlabankastjóra hvað vexti varðar eða hækkun millibankavaxta í kjölfar útgáfu innstæðubréfa bankans. „Þó er rétt að hafa í huga að óvissa tengd því hvort, hvernig og hvenær verður leyst úr Icesave-málinu, og í kjölfarið hvenær áætlun um afléttingu hafta og lækkun innlendra vaxta kemst á skrið, er með mesta móti og ekki víst að þau mál skýrist fyrir víxlaútboðið," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira