Norrænu milljarðalánin skila sér bráðlega í hús 26. júní 2009 05:00 Fjármálaráðherra er ánægður að Norðurlöndin hafi samþykkt að lána Íslendingum hundruð milljarða króna til að koma efnahagslífinu hér á réttan kjöl.
Norðurlöndin hafa öll samþykkt að lána Íslendingum hundruð milljarða í erlendri mynt til að stuðla að fjárhagslegum stöðugleika hér. Viðræður standa yfir við Pólverja. Fjármálaráðherra er bjartsýnn á að Rússalán skili sér. „Þetta er mjög ánægjulegt," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, en í gær samþykkti finnska ríkisráðið og sænska ríkisstjórnin að veita Íslendingum tæpa 150 milljarða króna lán í erlendri mynt til að stuðla að fjárhagslegum stöðugleika hér. Finnar ætla að lána 325 milljónir evra, jafnvirði rúmra 58 milljarða króna á gengi gærdagsins, og Svíar 700 milljónir dala, jafnvirði níutíu milljarða króna. Þetta er hluti af samkomlagi við Norðurlöndin frá í nóvember í fyrra sem hljóðaði upp á 2,5 milljarða evra lán í heildina. Skrifað verður undir samþykktirnar í næstu viku. Danir og Norðmenn hafa þegar samþykkt lánveitingu hingað auk Færeyinga. Norrænu lánin eru öll frá ríki til ríkis nema í tilviki Noregs en lánið þaðan er til Seðlabankans. Lánin öll koma til viðbótar við 2,1 milljarðs dala lán frá Alþjóðjagjaldeyrissjóðnum (AGS) og eru hluti af samstarfsáætluninni við sjóðinn. Steingrímur segir þau byggjast á því að samstarfið haldi áfram. Ekki stendur til að endurskoða það, að sögn Steingríms, sem býst við að annar hluti AGS-lánsins skili sér í hús um miðjan næsta mánuð. Spurður hvort deila stjórnvalda hér við Breta vegna Icesave-innlánsreikninganna hafi tafið fyrir norrænu lánunum segir Steingrímur svo ekki vera. „Við höfum litið svo á að deilur okkar við Breta séu tvíhliða. Aðrir kunna að hafa litið öðruvísi á málið og haft tilhneigingu til að tengja þetta saman. Við höfum ekki gert það." Viðræður standa enn yfir við Pólverja og Rússa um lánveitingar. Steingrímur segir þær ganga ágætlega. Raddir hafa verið uppi um að ólíklegt sé að Rússalánið, sem kom óvænt inn í myndina skömmu eftir bankahrunið í október í fyrra, muni nokkurn tíma skila sér. Steingrímur telur þvert á móti líklegt að Rússalánið, sem hljóðar upp á hálfan milljarð Bandaríkjadala, muni skila sér. „Rússar hafa ekki viljað slíta viðræðunum. En þær er skammt á veg komnar," segir hann.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira