Viðskipti innlent

Innlán Straums færð til Íslandsbanka

Íslandsbanki hf. hefur yfirtekið skuldbindingar Straums vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á Íslandi.

Í tilkynningu segir að undanskilin séu innlán sem stofnað var til í tengslum við uppgjör eldri skulda fyrir gjalddaga. Sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu innlánsskuldbindingar hefur Straumur gefið út skuldabréf með veði í eignum bankans.

Þá hefur Straumur tryggt sér aðgang að nægu lausu fé til að standa við skuldbindingar gagnvart eigendum innlána í útibúi bankans í Danmörku. Þau innlán verða greidd á réttum gjalddögum. Með þessari ráðstöfun er óvissu um hagsmuni innlánseigenda eytt og jafnræðis gætt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×