Forstjóri Nýsis einnig regluvörður félagsins Ingimar Karl Helgason skrifar 2. apríl 2009 12:04 Höskuldur Ásgeirsson.
Forstjóri Nýsis var regluvörður félagsins. Fjármálaeftirlitinu er ekki kunnugt um nein dæmi um að forstjóri sé jafnframt regluvörður, enda þótt upplýsingar um Nýsisforstjórann liggi á heimasíðu eftirlitsins. Regluvörður á meðal annars að halda lista yfir innherja, fólk sem hefur aðgang að verðmyndandi upplýsingum félaga sem gefa út verðbréf, skráðra félaga, og hafa auga með viðskiptum þeirra. Hann þjónar í raun sem nokkurs konar innra eftirlit fyrirtækisins. Fyrirtæki eiga að tilkynna um regluvörðinn til Fjármálaeftirlitsins. Þetta er gert til að eftirlirlitið geti metið hvort hann sé nógu sjálfstæður í störfum sínum. Fréttamaður rak augun í að Höskuldur Ásgeirsson, fyrrverandi forstjóri Nýsis, var annan júlí í fyrra, skráður regluvörður félagsins. Félagið var umsvifamikið í fasteignarekstri og átti meðal annars hlut í tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Auk þess gaf félagið út skuldabréf fyrir milljarða. Fréttastofa sendi Fjármálaeftirlitinu fyrirspurn þar sem spurt var hvort eftirlitið gerði athugasemd við að forstjóri sé jafnframt regluvörður. Í svari FME segir að því sé ekki kunnugt um tilvik þar sem tilkynnt hafi verið að forstjóri félags sé jafnframt regluvörður þess. Ætla megi að slíkt fyrirkomulag veki spurningar um hæfi regluvarðar og sjálfstæði hans gagnvart stjórnendum félagsins. Því mætti draga verulega í efa að slíkt fyrirkomulag fullnægði kröfum Fjármálaeftirlitsins og reglum um sjálfstæði og hlutverk regluvarðar.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira