Miklar endurbætur á leiðbeiningum um stjórnarhætti 18. júní 2009 15:04
Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöllin gáfu út í dag endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á þessu sviði. Í þessari 3. útgáfu leiðbeininganna er sérstaklega horft til sambærilegra leiðbeininga frá öðrum löndum og forskriftar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Einnig eru fleiri og ítarlegri ákvæði í nýjum leiðbeiningum og gerðar eru ríkari kröfur til stjórnenda fyrirtækja en áður, á nær öllum sviðum. „Skemmst er frá því að segja að þörf er á að bæta stjórnarhætti í íslensku viðskiptalífi. Markmið nýrra leiðbeininga er að stuðla að þessu markmiði. Í þessu felst meðal annars að bæta stjórnarhætti og viðskiptasiðferði, hvetja til aukinnar upplýsingagjafar til viðskiptalífsins og opnari og öflugari samskipta á milli fyrirtækis, hluthafa, viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila,"sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri kauphallarinnar og formaður starfshóps um stjórnarhætti fyrirtækja, á blaðamannafundi í morgun. "Leiðbeiningunum er þannig ætlað að vera þáttur í uppbyggingu trausts og gegnsæis í íslensku viðskiptalífi. Við köllum eftir víðtæku samstarfi við fyrirtæki, fjárfesta, fjölmiðla, menntastofnanir og rannsóknaraðila um fylgni við leiðbeiningarnar, en virk þátttaka allra leggur grunninn að betri stjórnarháttum," Á fundinum var Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, afhent fyrsta eintak leiðbeininganna. Gylfi sagði m.a. afar mikilvægt að samstaða myndist um að draga lærdóm af því sem miður fór. Að hans mati er íslenskt atvinnulíf á langri vegferð til bata og endurreisnar. Gylfi sagði leiðbeiningarnar geta verið fyrsta skrefið á þeirri vegferð og tilvist þeirra væri jafnframt mikilvæg í ljósi þess að ekki væri unnt að setja lög um alla hluti og álitamál tengd atvinnurekstri. Á fundinum voru jafnframt viðstaddir fulltrúar nokkurra þeirra aðila sem aðstoðuðu við gerð nýju leiðbeininganna, þ.m.t. fulltrúar PricewaterhouseCoopers og Eþikos miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja auk Þorkels Sigurlaugssonar framkvæmdastjóra hjá Háskólanum í Reykjavík.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira