Innlent

Stórfyrirtæki styrktu frambjóðendur um milljónir króna

Stórfyrirtæki á borð við Baug og FL Group styrktu frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna árið 2006 um milljónir króna, samkvæmt heimildum fréttastofu. Einstakir frambjóðendur þáðu allt að tvær milljónir í styrk. Helmingur þingmanna hefur ekki vilja gefa upplýsingar um fjármögnun prófkjörsbaráttunnar fyrir síðustu þingkosningar.

Þegar allt lék í lyndi árið 2006 segja heimildamenn fréttastofu að bankar og fjármálafyrirtæki hafi verið mjög viljug að leggja stjórnmálaflokkum og einstaka stjórnmálamönnum lið. Það ár styrktu stórfyrirtæki á borð við Baug og FL Group frambjóðendur í prófkjörum stjórnmálaflokkanna um milljónir samkvæmt heimildum fréttastofu, en lög voru sett um hámark framlaga í ársbyrjun 2007. Hermt er að hæstu styrkir frá þessum félögum, sem runnu til einstakra prófkjörsþátttakenda, hafi numið tveimur milljónum króna.

Sums staðar var stillt upp á lista og lögðu þeir frambjóðendur ýmist ekkert eða sáralítið út fyrir kostnaði. Þeir sem háðu prófkjörsbaráttu eyddu hins vegar allt frá nokkrum tugum þúsunda, upp í átta milljónir í slaginn, samkvæmt þeim upplýsingum sem fréttastofan hefur aflað sér hjá þingmönnum. Aðeins tæpur helmingur þeirra fékkst til að upplýsa fréttastofu um kostnað vegna prófkjara, þegar eftir því var leitað, og enginn þingmaður vildi gefa upp hvort hann eða hún hefði fengið styrk upp á meira en hálfa milljón frá einstökum lögaðila.

Heimildir fréttastofu herma að sjálfstæðisþingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson og Guðfinna Bjarnadóttir, samfylkingarfólkið Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, og framsóknarmaðurinn fyrrverandi, Björn Ingi Hrafnsson, séu á meðal þeirra sem hlutu styrk frá áðurnefndum fyrirtækjum. Enginn hefur þó viljað staðfesta að hafa þegið slíkan styrk, en taka skal fram að ekki náðist í Helga Hjörvar við vinnslu fréttarinnar. Þá hefur Guðlaugur Þór dögum saman hunsað ítrekuð skilaboð fréttamanns.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×