Spáir óbreyttum stýrivöxtum Gunnar Örn Jónsson skrifar 1. júlí 2009 09:52 Seðlabankinn tilkynnir stýrivaxtaákvörðun sína á fimmtudaginn.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands birtir ákvörðun um stýrivexti á fimmtudag. Hagfræðideild Landsbankans spáir því að nefndin ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12%. Gangi þessi spá eftir er ljóst að róðurinn þyngist enn við endurfjármögnun erlendra skulda fyrirtækja og einstaklinga, en við núverandi aðstæður ráða vextir á innlánum í Seðlabanka miklu um fjármögnunarkostnað banka og vexti í kerfinu. Mikill þrýstingur hefur verið af hálfu atvinnurekenda, launþegasamtaka og fjármálastofnana á Seðlabankann að lækka stýrivexti og innlánsvexti hraðar og draga þar með úr fjármagnskostnaði bankakerfisins og lánþega þess. Seðlabankinn rekur hinsvegar afar aðhaldsama peningastefnu, með þeim rökum að hún sé ill nauðsyn til að treysta gengi krónunnar og búa í haginn fyrir afnám fjármagnshafta síðar á þessu ári. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands birtir ákvörðun um stýrivexti á fimmtudag og spáir hagfræðideildin því aið Seðlabankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum eins og áður segir. Við síðustu vaxtaákvörðun lækkuðu stýrivextir um 1 prósentustig og innlánsvextir stóðu í stað. Áhyggjur Seðlabankans af þróun verðlags og gengi íslensku krónunnar réðu þá mestu um ákvörðun peningastefnunefndar og hvort tveggja hefur þróast á verri veg en vonast var til. Spá hagfræðideildar má í heild sinni sjá hér.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira