Viðskipti innlent

Stjórnendur Össurar selja hlut sinn langt undir markaðsvirði

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,  sér eftir hlut sínum í fyrirtækinu.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sér eftir hlut sínum í fyrirtækinu.
Forstjóri Össurar hf. og framkvæmdastjórar hafa selt stærstan hluta hlutabréfa sinna í félaginu, alls 23.441.801 hlut eða 5,6% af heildarhlutafé félagsins. Hluturinn er seldur á genginu 88 sem er 9% undir lokagengi dagsins í dag. Viðskiptin námu því tæpum 2100 milljónum króna. Stærstur hluti bréfanna var upphaflega keyptur á hlutabréfamarkaði og fjármagnaður að nokkru leyti með lánsfé. Bréfin eru seld til uppgjörs á þeim skuldum. Össur hf. eða aðrir hluthafar Össurar hf. hafa aldrei veitt stjórnendum lán eða ábyrgðir.

Kaupandi hlutabréfanna er danska fjárfestingafyrirtækið William Demant Invest A/S. William Demant Invest hefur verið stærsti hluthafi Össurar frá árinu 2005 og eykur við kaupin hlut sinn úr 34,3% af heildarhlutafé í 39,9%. Þessar eignabreytingar leiða ekki til skyldu til að gera yfirtökutilboð í hlutabréf annarra hluthafa, þar sem nýsamþykktar breytingar á yfirtökureglum laga um verðbréfaviðskipti hafa ekki formlega tekið gildi. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að engar breytingar séu fyrirhugaðar á rekstri Össurar hf., hvorki á Íslandi né annarsstaðar, í kjölfar þessara viðskipta.

„Við sjáum verulega eftir þessum hlut okkar í félaginu en verðum að sætta okkur við að hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda hlutabréfunum. Össur hf. er gott og fjárhagslega sterkt fyrirtæki. Áherslan hefur alltaf verið jafnt á vöxt og hagnað, sem nú skilar sér í að félagið er eins vel undirbúið fjárhagslega og hægt er fyrir þær sviptingar sem nú ríða yfir," segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.

Eggert Þór Aðalsteinsson, fyrrverandi viðskiptablaðamaður á Fréttablaðinu og starfsmaður hjá greiningadeild Kaupþings, segir á bloggsíðu sinni að hluturinn hafi verið seldur á tombóluverði. Hann segir að Össur sé eitt frambærilegasta fyrirtæki á Íslandi og spyr sig hvort „Íslands eina von" verði selt á brunaútsölu til erlendra fjárfesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×