Uppsagnir eða launaskerðing hjá ríkisstarfsmönnum boðaðar 26. júní 2009 16:30 „
Einnig blasir við að launastefna ríkisins verður óhjákvæmilega að taka mið af því að launakostnaðurinn verður að lækka og að því verður ekki náð fram nema annað hvort með breyttum launatekjum eða fækkun starfsfólks," segir í skýrslu Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um jöfnuð í ríkisfjármálum árin 2009 til 2013 sem lögð hefur verið fram á alþingi. Í skýrslunni eru lagðir fram nokkrir punktar um útfærslu á þessari sparnaðarleið. Þar segir: „Þá getur komið til álita að gera breytingar á fyrirkomulagi biðlauna hjá ríkisstarfsmönnum. Ekki skal ráðið í störf sem losna hjá ráðuneytum og stofnunum ríkisins eða stofna til nýrra starfa nema brýna nauðsyn beri til. Nýta skal mannauð og sérfræðiþekkingu innan ríkisins þannig að þekking og störf séu flutt á milli eftir áherslum og þörfum hverju sinni. Ekki skulu ráðnir utanaðkomandi ráðgjafar í verkefni hjá ráðuneytum og stofnunum ríkisins nema brýna nauðsyn beri til og sérfræðiþekking sé ekki til staðar meðal ríkisstarfsmanna. Ráðuneyti og stofnanir skulu án tafar taka til endurskoðunar aukagreiðslur starfsfólks sem er á föstum launum, s.s. fyrir setu í nefndum, ráðum og stjórnum, greiðslur vegna aksturssamninga og öðrum aukagreiðslum. Einnig ber að gera ráðstafanir til að draga umtalsvert úr ferðakostnaði og risnu miðað við undanfarin ár." Þá er að finna í skýrslunni að öll áform ríkisstofnanna sem kosta meira en 50 miljónir kr. verði að bera undir fjármálaráðuneytið og fá heimild þess til verksins. Hvað skatta varðar hafa þær ráðstafanir að mestu verið kynntar. Hinsvegar segir í skýrslunni þar til viðbótar að til athugunar er að hækka skatthlutfall lögaðila í átt að því sem gerist í flestum Evrópulöndum og miðað við það að skattur á hagnað félaga ásamt skatti á arð verði um það bil hinn sami og á launatekjur einstaklinga, endurskoða ýmsa frádráttarliði og þrengja heimildir til skattfrjálsrar móttöku á arði og söluhagnaði af hlutabréfum o.fl.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira