Gagnrýna ummæli um Ölgerðina 3. desember 2009 16:21 Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Samtök iðnaðarins segja með ólíkindum hvernig yfirmaður eftirlitssviðs ríkisskattstjóra dylgjar um rekstur og ákvarðanir Ölgerðarinnar og stjórnenda þess. Samtök iðnaðarins ætlast til þess að ríkisskattstjóri sjái til þess að slíkt endurtaki sig ekki. Ölgerðin sagði upp hátt í 40 starfsmönnum í þessari viku. Að sögn forstjóra fyrirtækisins er verið að grípa til ráðstafana vegna vænts samdráttar í eftirspurn á næsta ári, meðal annars vegna hækkunar skatta og vörugjalds. Aðalsteinn Hákonarson, forstöðumaður eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að vandi Ölgerðarinnar sé væntanlega meiri af völdum skuldsettrar yfirtöku en af völdum skattanna. „Hver trúir því eftir þetta að eftirlitsdeild ríkisskattstjóra fari hlutlaust með málefni Ölgerðarinnar undir stjórn forstöðumannsins sem vænir stjórnendur beinlínis um að fara með lygimál,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, í tilkynningu frá samtökunum. Samtök iðnaðarins hafa gagnrýnt skattastefnu stjórnvalda er lýtur að skattlagningu matvæla, hækkun virðisaukaskatt á tilteknum matvælum og álagningu vörugjalda. „Samtök iðnaðarins hafa lagt fram ítarlegar tillögur um aðrar aðferðir við skattlagningu matvæla. Samtökin hafa einnig varað sterklega við afleiðingum þessarar stefnu,“ segir framkvæmdastjórinn. Jón Steindór segir Ölgerðina vera dæmi um fyrirtæki sem þessi skattlagning bitnar þungt á. „Það segir til sín í sölutölum og enn ætlar ríkisstjórnin að bæta í og leggja enn meiri skatta á þessar vörur. Ölgerðin hefur því neyðst til að bregðast við með þungbærum aðgerðum, m.a. með uppsögnum starfsfólks.“ Þetta sé í fullu samræmi við það sem Samtök iðnaðarins hafa varað við og óttast að myndi gerast.
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira