Fjárfesting í íbúðarhúsnæði minnkaði um 57% milli ára 8. desember 2009 11:23
Fjárfesting í íbúðarhúsnæði dróst saman um 57% á milli þriðja ársfjórðungs í ár og sama tíma í fyrra. Er þetta mesti samdráttur í íbúðarfjárfestingu yfir eitt ár sem mælst hefur frá því að ársfjórðungslegir þjóðhagsreikningar hófust árið 1998.Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þessi samdrátturinn komi ofaná 24% samdrátt sem orðinn var á þriðja ársfjórðungi í fyrra frá sama tíma árið 2007. Þannig var fjárfesting í íbúðarhúsnæði á þriðja ársfjórðungi í ár einungis 9,6 milljarðar kr. og um 42% af því sem hún var á sama tíma fyrir tveim árum. Kemur þetta fram í tölum sem Hagstofan birti í gær.Ofangreind þróun kemur ekki á óvart en kreppan hefur ekki síst birst í kröftugri niðursveiflu á íbúðamarkaðinum. Húsnæðisverð hefur lækkað á sama tíma og byggingarkostnaður hefur hækkað. Þannig var verð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu 12% lægra í október í ár en í upphafi árs 2008 þegar það stóð hæðst í síðustu uppsveiflu. Á sama tíma hefur vísitala byggingakostnaðar hækkað um 32%.Eftirspurn eftir nýju íbúðarhúsnæði hefur dregist umtalsvert saman á þessu tímabili ásamt spurn eftir íbúðarhúsnæði almennt. Í nóvember síðastliðnum var fjöldi kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu með íbúðarhúsnæði innan við þriðjungur þess sem hann var í sama mánuði 2007.Þá voru heildarútlán Íbúðalánasjóðs á fyrstu ellefu mánuðum þessa árs 56% minni en á sama tímabili í fyrra samkvæmt skýrslu sjóðsins sem birt var nú í morgun. Alls voru útlán sjóðsins á þriðja ársfjórðungi í ár 6,9 milljarða kr. samanborið við 17,3 milljarða kr. í sama ársfjórðungi 2007.Í þessu árferði hefur ekki gengið sem skyldi að selja nýtt húsnæði og stendur nokkuð af því autt eða hefur verið leigt út en leigumarkaðurinn hefur verið nokkuð blómlegur undanfarið. Arðsemi þess að ráðast í nýbyggingar, sem var umtalsverð þegar bólan á íbúðamarkaðnum stóð sem hæðst í uppsveiflunni síðustu, er nú lítill sem enginn.Þróunin hefur valdið umtalsverðum gjaldþrotum í byggingariðnaði en á fyrstu tíu mánuðum þessa árs hafa 203 fyrirtæki orðið gjaldþrota í byggingarstarfsemi en í fyrra voru þau 119 á sama tíma
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira