Jafnt hjá Tottenham og Portsmouth Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. janúar 2009 18:00 Jermain Defoe fagnar marki sínu gegn Portsmouth í dag. Nordic Photos / Getty Images
Harry Reknapp, stjóri Tottenham, náði ekki að stýra sínum mönnum til sigurs gegn sínu gamla félagi, Portsmouth, í síðari leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham fékk þó fleiri færi í leiknum og hefði átt að gera út um hann í lokin. Það var þó David Nugent sem kom Portsmouth yfir í leiknum en Jermain Defoe jafnaði metin fyrir Tottenham. Úrslitin þýðá að Tottenham er í sextánda sæti deildarinnar með 21 stig en nú eru fimm neðstu lið deildarinnar jöfn að stigum - Tottenham, Blackburn, Middlesbrough, Stoke og West Brom. Þrjú lið eru í 13.-15. sæti með 23 stig - Bolton, Newcastle og Sunderland. Portsmouth er svo í tólfta sætið með 24 stig. Redknapp gerði eina breytingu á liði Tottenham. Aaron Lennon kom inn fyrir Michael Dawson sem þýddi að Ledley King var aftur kominn í stöðu miðvarðar. Jermain Defoe, sem kom nýverið frá Portsmouth, var í byrjunarliði Tottenham. Tony Adams gerði einnig eina breytingu á sínu liði en Sean Davis kom inn fyrir Mark Wilson. Hermann Hreiðarsson var sem fyrr á varamannabekk liðsins. Það var ekkert skorað í fyrri hálfleik en nóg um færi. Defoe fékk það fyrsta en skaut fram hjá úr góðu færi. David James, markvörður Portsmouth, varði svo vel frá Lennon skömmu síðar. Reyndar átti James frábæran leik í dag og varði oft vel frá leikmönnum Tottenham, til að mynda góðan skalla Ledley King. David Nugent átti eitt besta færi Portsmouth í fyrri hálfleik er hann fékk stungusendingu frá Niko Kranjcar í gegnum vörn Tottenham en Heurelho Gomes var vel á verði. Tottenham byrjaði betur í síðari hálfleik en það voru gestirnir sem komust yfir á 59. mínútu. Og þar var það David Nugent að verki með sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni. David James var nýbúinn að bjarga glæsilega frá Aaron Lennon. Portsmouth komst í skyndisókn og Armand Traore kom boltanum á Nugent sem skoraði með skoti sem hafði reyndar viðkomu í Gareth Bale. En aðeins ellefu mínútum síðar náði Jermain Defoe að jafna metin. Luka Modric kom boltanum á Defoe sem skoraði með góðu skoti. Darren Bent fékk svo eitt besta færi tímabilsins þar sem hann hefði getað tryggt Tottenham sigurinn. David Bentley átti glæsilega fyrirgjöf frá vinstri sem rataði beint á kollinn á Bent sem var einn og óvaldaður á fjarstöng. En hann skallaði boltann framhjá. Niðurstaðan því 1-1 jafntefli. Hermann Hreiðarsson kom inn á sem varmaður seint í leiknum.
Mest lesið Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Fótbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira