Mikil áhættufælni Íslendinga 26. ágúst 2009 09:34 Íslendingar eru ekki eins áhættusæknir og undanfarin ár og hafa dregið verulega úr áhættusömum fjárfestingum.
Mikið lausafé er nú í íslenska fjármálakerfinu. Þetta má meðal annars sjá í nýjum gögnum Seðlabankans um innlán lánastofnana í Seðlabankanum. Þegar kreppir að, sérstaklega í kjölfar bankakreppu líkt og riðið hefur yfir Ísland, frestar fólk neyslu og fjárfestingar dragast hratt saman. Hagsjá Landsbankans segir að innlánsvextir Seðlabankans skipti meira máli en stýrivextir um þessar mundir. Áhættufælni eykst við erfiðar markaðsaðstæður Fólk og fyrirtæki kjósa fremur að spara en eyða og því aukast innstæður hratt. Hugsanlega er hér einnig um að ræða viðleitni til að auka á ný peningalegar eignir eftir þann skell sem varð í bankahruninu. Loks hefur áhættufælni aukist og sparnaður leitar í öruggustu sparnaðarformin, innlán og ríkisverðbréf. Frá bankahruninu síðasta haust hafa innlán í íslenskum bönkum aukist þónokkuð en um það bil 20% aukning hefur verið á innlánum innlendra aðila í innlánsstofnunum. Bankarnir ávaxta innlán sín í Seðlabankanum Fáir fjárfestingarkostir valda því að bankarnir leita oftar en ekki í faðm viðkomandi Seðlabanka til þess að ávaxta þetta lausafé. Sú hefur orðið raunin hér á landi, laust fé hefur safnast á viðskiptareikninga banka í Seðlabankanum. Á fyrri helmingi þessa árs jukust innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum um 64% frá áramótum til loka júlí mánaðar. Að lokum bendir Greiningardeildin á að við þessar aðstæður bíta stýrivextir Seðlabankans ekki sem skyldi. Hagsjáin hefur áður sagt frá því að í raun skipti innlánsvextir hans meira máli um þessar mundir en stýrivextirnir sem eru útlánsvextir bankans. Innlánsvextir Seðlabankans eru þeir vextir sem lánastofnunum bjóðast á viðskiptareikningum sínum hjá Seðlabankanum. Stýrivextir Seðlabankans eru nú 12% en innlánsvextir 250 punktum lægri eða 9,5%.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira