Hrun innflutnings skýrir afganginn á vöruskiptum 1. desember 2009 07:41
Á fyrstu tíu mánuðum ársins hefur innflutningur til landsins minnkað um 43% á föstu gengi miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta hrun í innflutningnum skýrir að stórum hluta mikinn afgang í vöruskiptum við útlönd.Hagfræðideild Landsbankans fjallar um málið í Hagsjá sinni. Þar segir að afgangur af vöruskiptum við útlönd nam tæplega 60 milljörðum kr. fyrstu tíu mánuði ársins samkvæmt gögnum sem Hagstofa Íslands birti í gærmorgun. Á sama tímabili í fyrra var tæplega 50 milljarða kr. halli á vöruskiptum svo viðsnúningurinn er allverulegur.Þegar hagkerfi gengur í gegnum gengisfellingu líkt og það íslenska hefur gert undanfarin tvö ár batnar staða útflutningsatvinnuvega mjög gagnvart erlendum samkeppnisaðilum. Að öðru jöfnu ætti slík þróun að auka útflutning viðkomandi hagkerfis. Að sama skapi batnar samkeppnisstaða innlendrar framleiðslu gagnvart erlendri og því ætti að draga úr innflutningi og hjálpast því bæði að, minni innflutningur og meiri útflutningur, við að bæta vöruskiptajöfnuðinn.„Hér á landi hefur vissulega dregið úr innflutningi á meðan tölur um útflutning gefa til kynna að kerfið vinni nálægt fullum afköstum. Þannig hefur verðmæti útflutnings fyrstu tíu mánuði ársins lækkað um 26% frá sama tímabili í fyrra á föstu gengi sem má að miklu leyti skýra með verðþróun mikilvægustu útflutningsvaranna, fiskafurða og áls, á alþjóðamörkuðum. Innflutningur hefur aftur á móti dregist saman um 43% á tímabilinu á föstu gengi," segir í Hagsjánni.
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira