Telur laun skilanefndamanna vera eðlileg 26. mars 2009 18:36
Heildarkostnaður við uppskipti bankanna nálgast nú milljarð. Þar af nema laun til skilanefndarmanna 240 milljónum króna en árslaun eins skilanefndarmanns myndu duga til að borga verkamanni laun í 14 og hálft ár. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra telur þetta eðlileg laun. Skilanefndarmenn eru með verktakasamning við Fjármálaeftirlitið og samkvæmt samþykkt sem gerð var þar eru hámarkslaun á hvern nefndarmann 15 þúsund krónur á tímann. Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar, segir að hér sé um að ræða útselda vinnu fyrir þá 15 einstaklinga sem skipa skilanefndirnar þrjár og að einhverjum hluta útseld vinna fyrir nefndina. Hinsvegar megi gera ráð fyrir að hver nefndarmaður hafi fengið um 3 milljónir í mánaðarlán. Mikið vinnuálag var á skilanefndirnar í upphafi en gera má ráð fyrir að vinnuframlag muni fara minnkandi. Sé hins vegar gengið út frá því vinnuframlagi sem verið hefur má gera ráð fyrir að launakostnaður vegna þeirra 5 skilanefnda sem nú eru starfandi verði tæpar 825 milljónir fyrir árið 2009. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni myndu laun skilanefndamannanna duga til að borga tæplega 4000 verkamönnum laun í heilt ár. Þá tæki það einn verkamann 14 og hálft ár að vinna fyrir árslaunum eins skilanefndarmanns. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, segir að launin séu vissulega há miðað við það sem almennt gerist hjá hinu opinbera.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira