Telja sig þvingaða í viðskipti við Kaupþing 25. mars 2009 12:10
Persónuvernd hafa borist kvartanir frá viðskiptavinum SPRON vegna flutnings á innistæðum þeirra yfir í Nýja Kaupþing. Fólkið telur að flutningarnir séu ólöglegir og að það hafi verið þvingað í viðskipti við Kaupþing. Allar innistæður viðskiptavina SPRON voru fluttar til nýja Kaupþings þegar Fjármálaeftirlitið tók bankann yfir á laugardaginn. Nú þegar hafa nokkrir viðskiptavinir SPRON sett sig í samband við Persónuvernd vegna málsins. Telja þeir á sér brotið þar sem bankaupplýsingar hafi verið sendar á annað fjármálafyrirtæki án þeirra samþykkis. Þannig hafi fólkið verið þvingað í viðskipti við Kaupþing áður en það fékk tækifæri til að skipta um banka. Þær upplýsingar fengust hjá Persónuvernd að um þessa flutninga gilda ekki almenn persónuverndarlög. Málið heyri undir Fjármálaeftirlitið Neyðarlögin, sem samþykkt voru á Alþingi í byrjun október á síðasta ári veitir Fjármálaeftirlitinu heimildir til að grípa til sérstakra ráðstafana til að vernda meðal annars innistæður. Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Nýja Kaupþings, segir að bankanum hafi þó ekki borist margar kvartanir frá fyrrum viðskiptavinum SPRON. „Kvartanir snúast fyrst og fremst um útlánin og hvernig þau verða. Ens og staðan er eru útlánin hjá skilanefndinni og það á eftir að ákveða hver mun þjónusta þau, en það skýrist næstu daga," segir Berghildur sem á von á því verði gert þannig að röskun viðskiptavina SPRON verði sem minnst. Aðspurð segir Berghildur lítið hafa verið um að viðskiptavinir SPRON hafi lokað reikningum sínum og flutt viðskipti sín yfir í aðra banka.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira